Loftslagsráðherrann kýldur úti á götu Kjartan Kjartansson skrifar 14. mars 2019 09:06 James Shaw, loftslagsmálaráðherra Nýja-Sjálands, var á leiðinni í þinghúsið í Wellington þegar karlmaður réðst á hann. Vísir/Getty
Nýsjálendingar eru sagðir slegnir eftir að ráðist var á loftslagsmálaráðherra landsins úti á götu þegar hann var á leið í þinghúsið í morgun. Ráðherrann slasaðist ekki alvarlega en ekki er ljóst hvort að árásin hafi átt sér pólitískar ástæður. Karlmaður vatt sér upp að James Shaw, varaformanni Græna flokksins, og kýldi hann í andlitið í miðborg Wellington. Árásarmaðurinn, sem er 47 ára gamall, var handtekinn og á að koma fyrir dómara á morgun, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. David Parker, viðskiptaráðherrann, segir að árásarmaðurinn hafi öskrað hluti um Sameinuðu þjóðirnar áður en hann kýldi Shaw sem fékk glóðarauga. Stjórnmálamenn úr öllum flokkum hafa lýst yfir undrun og áhyggjum, þar á meðal Jacinda Ardern, forsætisráðherra. „Á Nýja-Sjálandi býst maður bara ekki við að svona hlutir gerist. Við erum með umhverfi á Nýja-Sjálandi þar sem stjórnmálamenn eru aðgengilegir og það er eitthvað sem við ættum að vera stolt yfir,“ sagði hún og varaði við því að landsmenn tækju því sem gefnum hlut.
Loftslagsmál Nýja-Sjáland Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira