Innlent

Leit hætt við Ölfusá en hefst aftur af fullum þunga um helgina

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Frá aðgerðum við Ölfusá í gær.
Frá aðgerðum við Ölfusá í gær. vísir/jói k.
Leitin að Páli Mar Guðjónssyni sem var einn í bíl sem fór í Ölfusá um klukkan tíu síðastliðið mánudagskvöld hefur ekki borið árangur. Leitinni hefur verið hætt í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi verður fylgst með ánni fram að helgi þegar leit hefst aftur af fullum þunga.

Björgunarsveitarmenn gengu um níu kílómetra meðfram bökkum Ölfusár í dag, niður að Arnarbæli. Bílinn fór út í ána við kirkjuna á Selfossi.

Á morgun og fimmtudag verða ekki skipulagðar göngur með fram bökkum Ölfusár en þekktir staðir verða kannaðir. Um komandi helgi verður hins vegar settur fullur þungi í leitina þar sem svæðið verður fínkembt á ný.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×