Palace og Swansea komin áfram Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 17. febrúar 2019 18:11 Leikmenn Palace fagna vísir/getty
Crystal Palace og Swansea eru komin áfram í átta liða úrslit ensku bikarkeppninnar í fótbolta. C-deildarlið Doncaster tók á móti úrvalsdeildarliði Crystal Palace. Gestirnir byrjuðu leikinn af krafti og komust yfir eftir sjö mínútna leik. Luka Milivojevic vann boltann og fann Jeffrey Schlupp sem kláraði færið. Palace var með öll völd á vellinum, eins og búast mátti við, og hefði átt að fá vítaspyrnu undir lok fyrri hálfeiks þegar Paul Downing fékk boltann í hendina. Áður en hálfeikurinn var úti náði Palace þó í annað mark þegar Max Meyer skoraði eftir sendingu Andros Townsend. Í seinni hálfleik reyndu heimamenn hvað þeir gátu en þeir fundu ekki markið og eru því úr leik í bikarnum. Í Wales mættust B-deildarliðn Swansea og Brentford. Gestirnir frá Brentford komust yfir eftir um hálftíma þegar Ollie Watkins skoraði eftir skyndisókn. Þeir komu boltanum svo aftur í netið en mark Neal Maupay var dæmt af vegna rangstöðu. Svanirnir ógnuðu ekki mikið sóknarlega í fyrri hálfleik en þeir náðu að jafna leikinn snemma í þeim seinni. Bersant Celina tók aukaspyrnu í átt að marki, boltinn fór í stöngina og þaðan í bakið á Luke Daniels markverði og í markið. Heimamenn komust svo yfir með skyndisókn á 53. mínútu þar sem enginn leikmaður Brentford var inni á eigin vallarhelmingi og Daniel James þarf aðeins að hafa betur gegn markmanninum. James var við það að komast aftur einn í gegn þegar Ezri Konsa tók hann niður og fékk að líta beint rautt spjald. Swansea var ekki lengi að nýta sér liðsmuninn og skoraði Bersant Celina þriðja mark heimamanna. Undir lokin gulltryggði George Byers svo 4-1 sigur Swansea. Nú er aðeins eitt laust sæti eftir í 8-liða úrslitunum og ræðst annað kvöld hvort það verður Chelsea eða Manchester United sem tekur það. Liðin sem eru komin áfram eru Wolves, Millwall, Crystal Palce, Manchester City, Swansea, Watford og Brighton.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Fleiri fréttir Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Sjá meira