Solskjær búinn að leggja sína framtíðarsýn á borðið Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. febrúar 2019 10:00 Solskjær hefur blásið nýju lífi í lið United vísir/getty
Ole Gunnar Solskjær, bráðabirgðastjóri Manchester United, hefur vakið mikla lukku á Old Trafford síðan að hann tók við af José Mourinho í desember en undir stjórn Norðmannsins hefur liðið ekki tapað leik. United er búið að vinna sjö af átta deildarleikjum sínum og safna 22 stigum af 24, meira en nokkur annað lið á sama tíma en í heildina er liðið búið að vinna níu af tíu leikjum sínum í deild og bikar og er komið í alvöru baráttu um Meistaradeildarsæti. Norski stjórinn þekkir Manchester United inn og út og telur sig vita hvað þarf til að félagið nái árangri og þess vegna er hann búinn að leggja fram sína framtíðarsýn fyrir stjórnarformanninn Ed Woodward. „Á hverjum degi finnst mér að ég er að setja minn stimpil á félagið en það er ekki alltaf bara mín ákvörðun hvort að leikmaður vill koma eða fara. Stundum ákveða þeir það sjálfir en við höfum okkar sýn og vitum hvað við viljum gera á næstu árum,“ sagði Solskjær á blaðamannafundi sínum í dag. „Við verðum að horfa til lengri tíma á sama tíma og við horfum skammt fram á veginn. Ég er með ákveðna mynd í höfðinu af United-liðinu og hvernig ég vil að það líti út eftir nokkur ár. Ég er búinn að útskýra þessa skoðun mína fyrir Ed Woodward og stjórnina.“ „Ég hef stutt og fylgst með United í mörg ár og er með skýra sýn og hef sterka skoðun á þessu,“ sagði Ole Gunnar Solskjær.
Enski boltinn Mest lesið Hákon hjólaði í Greenwood: „Stjórnlaust, árásargjarnt og ofbeldisfullt“ Fótbolti Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Enski boltinn Ekið yfir unga stúlku á golfbíl á PGA-móti Golf Segir óafsakanlegt að Kristófer spili ekki með landsliðinu Körfubolti Skoðaði drykk Alberts eftir umræðu um vítin Enski boltinn Benítez kippti Sverri út af eftir óheppilegt sjálfsmark Fótbolti Bikarinn brotnaði við lyftingu Handbolti 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Íslenski boltinn Sjáðu afmælisstrákinn tryggja titilinn og tvöfalt klúður Kepa Enski boltinn Haaland fær frí frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir „Arteta skuldar Kepa ekki neitt heldur stuðningsmönnum Arsenal“ Messan: Vill að Solskjær taki við Spurs Sjáðu Brobbey brjóta hjörtu, Watkins svara fyrir sig og Spurs steinliggja Skoðaði drykk Alberts eftir umræðu um vítin Sjáðu afmælisstrákinn tryggja titilinn og tvöfalt klúður Kepa Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Báðir þurfa bikar Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Löng bið Leeds eftir marki lengist Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Vandræðalegi markvörður Tottenham gæti átt strax endurkomu Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Býst við því að Salah jafni sig fljótt „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real „Þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum“ Sjá meira