Viðskipti erlent

Apple selur færri iPhone

Samúel Karl Ólason skrifar
Tim Cook, forstjóri Apple, gaf í skyn að verð á iPhone símum myndi lækka.
Tim Cook, forstjóri Apple, gaf í skyn að verð á iPhone símum myndi lækka. AP/Richard Drew
Tekjur Apple vegna sölu iPhone síma drógust saman um 15 prósent á síðasta en þrátt fyrir að tekjur af símasölu hafi dregist saman jukust tekjur fyrirtækisins af öðrum tækjum og þjónustu um 19 prósent. og heildartekjur fyrirtækisins minnkuðu um fimm prósent á milli ára sem er meiri samdráttur en starfsmenn fyrirtækisins höfðu gert ráð fyrir. Tekjurnar á ársfjórðungnum voru 84,3 milljarðar dala, sem samsvarar um tíu billjónum króna (10.000.000.000.000).

Þetta kemur fram í nýju ársfjórðungsuppgjöri Apple sem birt var í gær. Uppgjörið er í raun fyrsta ársfjórðungsuppgjör Apple, þó þá nái yfir október, nóvember og desember.



Tim Cook, forstjóri Apple, segir að þó sala síma hafi dregist saman og fyrirtækið hafi ekki náð markmiðum sínum, sýni uppgjörið fram á að grundvallarrekstur Apple sé sterkur og dreifður.



Cook sagði einnig í kjölfar útgáfu uppgjörsins í samtali við fjárfesta og greinendur, að sterku dollar hafi gert iPhone dýrari á heimsvísu og það hefði dregið úr sölu. Hann sagði fyrirtækið hafa byrjað á því að breyta verði á símum þess til að draga úr áhrifum gengis á viðskiptavini.



Greinendur Apple gera áfram ráð fyrir því að tekjur fyrirtækisins muni dragast saman á næsta ársfjórðungi og þá um 3,4 prósent á milli ára.

Eins og BBC bendir á er Apple ekki eitt um að eiga erfitt, ef svo má að orði komast, en verðmæti hlutabréfa Apple hefur lækkað um um það bil þriðjung frá því í október. Á heimsvísu drógust sölur saman um fimm prósent í fyrra, samkvæmt greiningarfyrirtækinu Canalys.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×