Handbolti

Einkunnir strákanna okkar á móti Frakklandi í kvöld: Elvar Örn bestur

Elvar Örn Jónsson kom að níu mörkum íslenska liðsins.
Elvar Örn Jónsson kom að níu mörkum íslenska liðsins. Getty/TF-Images
Íslenska handboltalandsliðið lenti í sínu stærsta tapi á þessu heimsmeistaramóti í Þýskalandi og Danmörku þegar liðið lá með níu mörkum á móti heimsmeisturum Frakka, 22-31, í öðrum leik sínum í milliriðlinum í Köln.

Íslenska liðið skoraði ekki fyrstu tólf mínútur leiksins og lenti strax 6-0 undir. Frakkar fengu því hálfgerða sex marka forgjöf að þessu sinni sem var ekki góð viðbót við það að þurfa að spila án tveggja bestu manna sinna í Aroni Pálmarssyni og Arnóri Þór Gunnarssyni.

Ungu leikmenn íslenska liðsins fengu alvöru mínútur og rosalega reynslu í djúpu lauginni á móti einu allra besta liði heims. Þetta nýtist þeim vonandi vel og nú fær liðið tvo daga til að safna kröftum fyrir Brasilíuleikinn.

Líkt og áður þá gefur íþróttadeild Vísis og Stöðvar tvö leikmönnum og þjálfaranum einkunnir fyrir frammistöðu sína.

Elvar Örn Jónsson var besti leikmaður íslenska liðsins í kvöld að mati okkar en hann tók við mikilli ábyrgð í sókninni af Aroni Pálmarssyni og kom að níu mörkum auk þess að spila áfram frábærlega í varnarleiknum.

Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.

Einkunnir Íslands gegn Frakklandi:

- Byrjunarlið Íslands í leiknum -

Ágúst Elí Björgvinsson, mark - 4

(10 varin skot- 39:05 mín.)

Fékk að byrja og stóðs sig feikilega vel í fyrri hálfleik. Var tekinn út eftir tíu mínútur í seinni hálfleik en hefði mátt spila meira. Fín reynsla fyrir hann að fá þessar mínútur á móti besta liði heims.

Bjarki Már Elísson, vinstra horn - 3

(2 mörk - 60:00 mín.)

Fékk hann ekki úr miklu að moða frekar en öðrum leikjum sem hann hefur spilað á mótinu. Afar öflugur á teignum og leikmaður sem við ættum að geta treyst í þessari stöðu á næstu árum. Hefur ekki mikla reynslu í landsliðinu an á næstu misserum verður hann án efa fastamaður í íslenska liðinu.

Ólafur Guðmundsson, vinstri skytta - 2

(2 mörk - 34:37 mín.)

Engan veginn nægilega góður leikur gegn Frökkum. Var auðvitað öflugur varnarlega en olli í vonbrigðum í sókninni. Gerði mikið af tæknifeilum og skotnýtingin hans var ekki góð. Skrifast væntanlega á þreytu eftir marga erfiða leiki á fáum dögum.

Elvar Örn Jónsson, leikstjórnandi - 4

(5 mörk - 49:49 mín.)

Var að öðrum ólöstuðum besti leikmaður íslenska liðsins í leiknum. Lék varnarleikinn vel eins og hann hefur gert alla keppnina. Var áræðinn í sókninni og skoraði fín mörk. Gerði líka svolítið af mistökum sem skrifast á aldur og reynsluleysi. Toppmaður og alvöru eintak sem á bara eftir að vera betri með fleiri leikjum á stóra sviðinu.

Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi - spilaði of lítið

Ómar Ingi Magnússon, hægri skytta - 2

(0 mörk - 15:38 mín.)

Því miður hefur hvorki gengið né rekið hjá Ómari Inga á þessu heimsmeistaramóti. Hefur verið út úr fasa og finnur engan takt í sínum leik. Frammistaða hans hefur valdið miklum vonbrigðum. Líklega er hann óánægastur með sína frammistöðu sjálfur.

Sigvaldi Guðjónsson, hægra horn - 4

(4 mörk - 60:00 mín.)

Átti fínar rispur í þessum leik. Býr yfir alveg ótrúlegri mikilli skottækni og stökkkrafti og er líka frábær varnarmaður og klókur leikmaður. Hefur gott auga fyrir að stela knettinum. Þarna er kominn framtíðarmaður í íslenska landsliðinu sem við eigum eftir að sjá mikið af á næstu árum.

Arnar Freyr Arnarsson, lína - 3

(2 mörk - 38:54 mín.)

Stóð sig ekki illa í leiknum en það var ljóst frekar snemma að hann var orðinn örþreyttur enda búið að vera mikið álag á honum. Lagði sig samt fram og hann hefur verið vaxandi í mótinu. Mætti hins vegar bara algjörum ofjörlum sínum í þessum leik og það var sama hvert var litið í þeim efnum.

Ólafur Gústafsson, vörn - 3

(7 stopp - 21:36 mín.)

Bar fyrirliðabandið í frysta sinn og byrjaði leikinn vel. Var mjög góður framan af en meiddist síðan. Vonandi ekki alvarlega. Hefur heilt yfir verið besti varnarmaður Íslands í keppninni.

Haukur Þrastarson í leiknum á móti Frökkum þar sem hann skrifaði nýjan kafla í sögu landsliðsins á stórmóti.Vísir/EPA
- Menn sem komu inn af bekknum í leiknum -

Ýmir Örn Gíslason, lína - 3

(2 mörk - 22:42 mín.)

Frábær innkoma hjá Ými gegn besta liði heims. Varnarlega mjög sterkur og hann sýndi okkur að menn þurfa heldur ekkert að efast um hann í sóknarleiknum. Mun bara vaxa inn í verkefnið og það verður gaman að fylgjast með hversu langt hann getur komist.

Haukur Þrastarson, leikstjórnandi - 3

(2 mörk - 20:31 mín.)

Kom inn tiltölulega snemma inn og þurfti að bera mikla ábyrgð sautján ára gamall. Leikur liðsins lagaðist eftir að hann kom inn á. Auðvitað er erfitt fyrir ungan mann að halda út svona leik. Þetta var eldskírn fyrir hann en enginn efast um að þarna fer eitt mesta efni sem við höfum séð á Íslandi í háa herrans tíð. Til hamingju Haukur með fyrsta leikinn þinn á HM.

Teitur Örn Einarsson, hægri skytta - 3

(3 mörk - 25:08 mín.)

Kom inn af miklum krafti og skoraði góð mörk. Er hins vegar óbeislaður enda ungur. Verður gaman að sjá hvernig hann þróast sem leikmaður undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar.

Björgvin Páll Gústavsson, mark - 2

(1 varið skot- 18:10 mín.)

Spilaði í tuttugu mínútur og varði eitt skot. Einfaldlega ekki nægilega góð frammistaða. Hefur átt góðar rispur í mótinu en þær eru bara allt of stuttar.

Daníel Þór Ingason, vörn -  spilaði of lítið

Stefán Rafn Sigurmannsson, vinstra horn - spilaði ekki

Óðinn Þór Ríkharðsson, hægra horn - spilaði ekki

Guðmundur Guðmundsson henti ungu strákunum út í djúpu laugina.Getty/Jörg Schüler
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari - 4

Horfði til himins á átjándu mínútu. Þar var enga hjálp að fá. Þá setti hann inn á líklega yngsta landsliðsmann Íslands á heimsmeistaramóti fyrr og síðar. Auðvitað eiga þeir drengir mikið eftir ólært en væntanlega fá þeir ekki betri skólastjóra en Guðmund. Guðmundur veit manna best hvar skórinn kreppir og hvað vantar hjá þessum strákum. Erfitt að deila við mann sem gull og silfur frá Ólympíuleikum.

Útskýring á einkunnum:

6 - Heimsklassa frammistaða

5 - Frábær frammistaða

4 - Góð frammistaða

3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu

2 - Ekki nógu góð frammistaða

1 - Slakur leikur


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×