Handbolti

Einkunnir strákanna okkar á mótu Þjóðverjum í kvöld: Ólafur Gústafs bestur í íslenska liðinu

Ólafur Gústafsson var frábær í íslensku vörninni og hér tekur hann vel á móti Paul Drux .
Ólafur Gústafsson var frábær í íslensku vörninni og hér tekur hann vel á móti Paul Drux . Getty/Jörg Schüler
Íslenska handboltalandsliðið tapaði með fimm mörkum á móti grjóthörðu þýsku liði í fyrsta leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi og Danmörku.

Íslenska liðið komst lítið áleiðis gegn frábærri vörn heimamanna og sóknarleikur íslenska liðsins gekk frekar illa eftir að Aron Pálmarsson fór meiddur af velli. Ekki batnaði ástandið þegar Arnór Þór Gunnarsson, markahæsti leikmaður íslenska liðsins, meiddist líka. Óviss með framhaldið hjá þeim tveimur.

Íslenska liðið spilaði góða vörn allan leikinn og hélt sér inn í leiknum þrátt fyrir mikið mótlæti í formi meiðsla og gríðarlegs stuðnings sem þýska liðið fékk í kvöld.

Líkt og áður þá gefur íþróttadeild Vísis og Stöðvar tvö leikmönnum og þjálfaranum einkunnir fyrir frammistöðu sína.

Ólafur Gústafsson var besti leikmaður íslenska liðsins í kvöld að mati okkar en hann var frábær í miðri íslensku vörninni sem hélt þýska liðinu í 24 mörkum á heimavelli.

Arnór Þór Gunnarsson mjög góður þær mínútur sem hans naut við og Arnar Freyr Arnarsson stóð sig líka vel í vörn og sókn.

Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.

Einkunnir Íslands gegn Þýskalandi:

- Byrjunarlið Íslands í leiknum -

Björgvin Páll Gústavsson, mark - 3

(10 varin skot- 53:48 mín.)

Var í erfiðleikum í markinu. Fékk á sig mikið af skotum utan af velli og það er löngu vitað að það er ekki hans sterkasta hlið.

Bjarki Már Elísson, vinstra horn - 3

(1 mark - 27:35 mín.)

Skoraði gott mark í byrjun leiks en síðan reyndi ekki mikið á hann þegar hann lék í fyrri hálfleik. Hann fékk ekki mikið boltann og því var ekki við hann að sakast.

Aron Pálmarsson, vinstri skytta - 4

(3 mörk - 20:54 mín.)

Var stórkostlegur fyrstu tuttugu mínúturnar sem hann lék. Það sást glögglega þegar hann yfirgaf völlinn meiddur að þá datt svolítið botninn úr leik íslenska liðsins. Það segir okkur að hann er sá sem við getum ekki verið án. Hann dregur vagninn og ef hans nýtur ekki við þá erum við í vandræðum.

Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi - 3

(1 mark - 25:36 mín.)

Var frábær fyrstu tuttugu mínútur leiksins. Auðvitað hefði hann getað nýtt færin sín betur en hann er leikstjórnandi sem við þurfum á að halda. Hann náði ekki að halda út í seinni hálfleik. Hann er bara nítján ára. Svo virtist hann líka vera að kveinka sér vegna axlarmeins sem er áhyggjuefni.

Ómar Ingi Magnússon, hægri skytta - 2

(0 mörk - 17:12 mín.)

Því miður var þetta ekki nægilega góð frammistaða að hans hálfu. Það er algjörlega ljóst að hann þarf að gera miklu mun betur ef hann ætlar að vera í þessari stöðu í íslenska landsliðinu. Hann hefur leikið vel í Danmörku en frammistaða hans á heimsmeistaramótinu er mikil vonbrigði.

Arnór Þór Gunnarsson, hægra horn - 5

(6 mörk - 39:28 mín.)

Hann var langbesti leikmaður Íslands sóknarlega en því miður koma það í ljós þegar leið á leikinn að hann gekk ekki heill til skógar. Það eru vond tíðindi fyrir íslenska liðið í framhaldinu. Fórnaði sér margoft fyrir liðið en skrokkurinn hélt ekki út.

Arnar Freyr Arnarsson, lína - 4

(2 mörk - 46:49 mín.)

Frábær leikur frá Arnari, bæði í sókn og vörn. Leið svolítið fyrir það að fá tvisvar sinnum tvær mínútur snemma leiks. Hefur vaxið gríðarlega á mótinu og hefur verið frábær í síðustu tveimur leikjum Íslands.

Ólafur Gústafsson, vörn - 5

(3 stopp - 28:24 mín.)

Frábær leikur hjá honum. Varnarleikurinn hans var hnökralítill og nánast hnökralaus. Að fá 24 mörk á sig á móti Þýskalandi á heimavelli er frábær frammistaða. Hann stýrði varnarleik íslenska liðsins eins og herforingi og þetta var besti leikur hans í keppninni.

Ólafur Guðmundsson lætur vaða á markið í leiknum.Getty/Jörg Schüler
- Menn sem komu inn af bekknum í leiknum -

Elvar Örn Jónsson, leikstjórnandi - 2

(0 mörk - 38:59 mín.)

Stóð fyrir sínu varnarlega í leiknum eins og í öllum leikjum Íslands í keppninni. Sóknarleikurinn hans var aftur á móti afleitur. Hann reyndi samt allan leikinn og fær plús fyrir það en því miður ekki nógu góður leikur hjá honum.

Ólafur Guðmundsson, vinstri skytta - 4

(3 mörk - 34:42 mín.)

Þurfti að taka leikinn yfir þegar Aron fór af velli. Það mæddi því mikið á honum sóknarlega og hann stóð sig prýðilega. Var líka öflugur í vörninni. Var að spila á sínu styrkleikjum en hann gerir ekki hlutina upp á eigin spýtur og þarf meiri hjálp. Ekkert hægt samt að kvarta yfir hans frammistöðu.

Stefán Rafn Sigurmannsson, vinstra horn - 2

(0 mörk - 30:00 mín.)

Frammistaða hans í þessum leik var ekki nægilega góð. Þarf að gera mun betur. Hefur sýnt það í Ungverjalandi að hann er frábær leikmaður en hann þarf að galdra það fram með íslenska landsliðinu. Hann var langt frá því gegn Þýskalandi.

Ýmir Örn Gíslason, lína - 3

(1 mark - 16:45 mín.)

Leysti Arnar Frey af og skoraði gott mark. Varnarleikurinn hans í leiknum var mjög góður. Spurning hvort að þjálfarinn þurfi ekki að leggja aðeins meira traust á hans herðar í næstu leikjum og sjá hvort hann sé ekki traustsins verður.

Sigvaldi Guðjónsson, hægra horn - 3

(2 mörk - 20:16 mín.)

Spilaði ekki mikið. Stelur boltanum þrisvar og skoraði tvö mjög góð hraðaupphlaupsmörk. Klikkaði samt á tveimur fyrstu færum sínum. Þetta er leikmaður sem við þurfum á að halda en sviðið er mjög stórt. Stóð sig vel þann tíma sem hann fékk.

Teitur Örn Einarsson, hægri skytta - 2

(0 mörk - 19:01 mín.)

Líður svolítið fyrir það hafa verið kallaður inn á síðustu stundu og ekkert æft með liðinu í aðdraganda mótsins. Er oft hent inn í leikina við erfiðar aðstæður og það er oft erfitt fyrir unga menn að standa af sér. Menn eru að bíða eftir því að hann geri eitthvað upp á eigin spýtur. Það gerist ekki. Hann þarf að fá meira traust og meiri spilatíma til að gera sýnt hvað í honum býr.

Daníel Þór Ingason, vörn - spilaði of lítið

Ágúst Elí Björgvinsson, mark - spilaði of lítið

Guðmundur Guðmundsson fagnar góðum varnarleik.Getty/Jörg Schüler
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari - 4

Varnarleikur íslenska liðsins á móti Þýskalandi fyrir framan tuttugu þúsund áhorfendur var frábær. Því miður fylgdi markvarslan ekki nógu vel með. Það var ekki hægt að kvarta yfir sóknarleiknum fyrstu tuttugu mínúturnar og Guðmundur fann lausnirnar. Vopnabúrið er hins vegar ekki næginlega leikreynt og öflugt. Þar þurfa menn að sýna þolinmæði. Ekki bara í næstu tveimur leikjum heldur á næstu tveimur árum.

Útskýring á einkunnum:

6 - Heimsklassa frammistaða

5 - Frábær frammistaða

4 - Góð frammistaða

3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu

2 - Ekki nógu góð frammistaða

1 - Slakur leikur


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×