Aron Pálmars búinn að koma okkur oftast yfir á HM 2019 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2019 16:30 Aron Pálmarsson. Getty/TF-Images
Aron Pálmarsson er sá leikmaður sem hefur komið íslenska handboltalandsliðinu oftast í forystu á HM í handbolta í Þýskalandi og Danmörku. Ísland hefur alls komist 27 sinnum yfir í leikjunum sjö þar af ellefu sinnum í fyrsta leiknum á móti Króatíu. Ísland hefur komist yfir í öllum leikjum nema þeim síðasta á móti Frökkum þar sem íslensku strákarnir lentu 6-0 undir í upphafi leiks. Aron hefur sjö sinnum komið Íslandi yfir á þessu HM en fjögur af þessum mörkum komu í Króatíuleiknum. Aron kemur íslenska liðinu hins vegar ekki oftar yfir á þessu móti því hann er meiddur og verður ekki meira með. Það vekur smá athygli að markahæsti leikmaður Íslands á móti, Arnór Þór Gunnarsson, hefur aðeins tvisvar komið Íslandi yfir á þessu HM og hafa fimm leikmenn liðsins gert það oftar. Þannig hafa 4 af 11 mörkum Ómars Inga Magnússonar á þessum heimsmeistaramóti komið íslenska liðinu yfir eða 36 prósent marka hans. Elvar Örn Jónsson er annars í öðru sæti á eftir Aron en fimm marka hans hafa komið Íslandi í forystu. Bjarki Már Elísson og Arnar Freyr Arnarsson eru síðan í 4. til 5. sætinu á eftir Ómari Inga en þeir hafa báðir þrisvar sinnum komið Íslandi yfir. Flest mörk sem hafa komið Íslandi yfir í leikjunum á HM 2019: Aron Pálmarsson 7 Elvar Örn Jónsson 5 Ómar Ingi Magnússon 4 Bjarki Már Elísson 3 Arnar Freyr Arnarsson 3 Arnór Þór Gunnarsson 2 Gísli Þorgeir Kristjánsson 1 Sigvaldi Guðjónsson 1Ísland komst 11 sinnum yfir á móti Króatíu, einu sinni yfir á móti Spáni, tvisvar yfir á móti Barein, sjö sinnum yfir á móti Japan, fjórum sinnum yfir á móti Makedóníu og tvisvar yfir á móti Þýskalandi.
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira