Körfubolti

„Við réðum ekkert við Curry sem var stórkostlegur“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stephen Curry var stórkostlegur í nótt. Hér skorar hann eina af ellefu þriggja stiga körfum sínum í leiknum.
Stephen Curry var stórkostlegur í nótt. Hér skorar hann eina af ellefu þriggja stiga körfum sínum í leiknum. Getty/Ronald Martinez
NBA-meistarar Golden State Warriors þurftu algjöran stórleik frá Stephen Curry til að vinna Dallas Mavericks í NBA-deildinni í nótt en Houston Rockets tapaði aftur á móti í Orlando þar sem James Harden klikkaði á sextán þriggja stiga skotum í leiknum. Los Angeles Lakers tapaði síðan á heimavelli á móti Cleveland.





Stephen Curry setti niður ellefu þriggja stiga körfur og skoraði 48 stig þegar Golden State Warriors vann 119-114 útisigur á Dallas Mavericks. Kevin Durant skoraði 28 stig og Klay Thompson skoraði 9 af 16 stigum sínum í lokaleikhlutanum.

Warriors-liðið þurfti öll þessi stig frá Stephen Curry því ellefti þristurinn hans í leiknum kom liðinu í 117-114 forystu og réði í raun úrslitunum. Curry hitti úr 11 af 19 þriggja stiga skotum sínum og var einnig með 6 fráköst og 5 stoðsendingar.





„Við réðum ekkert við Curry sem var stórkostlegur,“ sagði Rick Carlisle, þjálfari Dallas Mavericks en aldrei áður hefur mótherji Dallas skorað svo marga þrista í einum leik.

Steve Kerr og Curry hrósuðu Kevin Durant eftir leik fyrir að sjá til þess að Curry fékk að skjóta frekar en hann.





Slóvenski nýliðinn Luka Doncic hjá Dallas sýndi styrk sinn á móti meisturunum með því að skora 26 stig, taka 6 fráköst og gefa 5 stoðsendingar. Liðið lék án þeirra J.J. Barea og  Dennis Smith Jr. en Harrison Barnes skoraði 22 stig.





Nikola Vucevic og Aaron Gordon skoruðu báðir 22 stig þegar Orlando Magic vann 116-109 heimasigur á Houston Rockets. James Harden skilaði flottum tölum þrátt fyrir hörmulega skotnýtingu.

James Harden klikkaði á 16 af 17 þriggja stiga skotum sínum í leiknum en skoraði yfir þrjátíu stigin í sextánda leiknum í röð. Harden var með 38 stig, 12 stoðsendingar og 9 fráköst en hitti aðeins úr 11 af 32 skotum sínum. 15 af 16 vítum hans rötuðu aftur á móti rétta leið.





Cleveland Cavaliers kom mjög á óvart og tókst að enda tólf leikja taphrinu sína með 101-95 útisigri á Los Angeles Lakers í Staples Center. Cedi Osman skoraði 20 stig fyrir Cleveland, Collin Sexton var með 17 stig og þeir Tristan Thompson (15 stig og 14 fráköst) og Alec Burks (17 stig og 13 fráköst) voru með flottar tvennur.

Kyle Kuzma skoraði 29 stig og tók 9 fráköst fyrir Lakers-liðið sem lék áfram án LeBron James. Liðið hefur tapað tveimur leikjum í röð og fimm af síðustu sjö. Brandon Ingram var með 22 stig og Lonzo Ball bætti við 13 stigum, 8 fráköstum og 8 stoðsendingum.

Serge Ibaka setti niður risastóran þrist fimmtán sekúndum fyrir leikslok þegar Toronto Raptors vann 140-138 sigur á Washington Wizards í tvíframlengdum leik í Washington. Raptors missti niður 23 stiga forystu í leiknum en tókst loksins að landa sigri.

Kawhi Leonard var með 41 stig og 11 fráköst fyrir Toronto og Pascal Siakim bætti við 24 stigum og 19 fráköstum. Bradley Beal var með þrennu hjá Washington, skoraði 43 stig, tók 10 fráköst og gaf 15 stoðsendingar. Otto Porter skoraði 27 stig og Trevor Ariza var mjög nálægt þrennu með 23 stig, 10 stoðsendingar og 9 fráköst.





Giannis Antetokounmpo skoraði 33 stig í 133-114 útisigri Milwaukee Bucks á Atlanta Hawks.

Ben Simmons var með 20 stig, 22 fráköst og 9 stoðsendingar í 108-105 sigri Philadelphia 76ers á New York Knicks í Madison Sqaure Garden. Joel Embiid var með 26 stig.









Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Los Angeles Lakers - Cleveland Cavaliers    95-101    

Denver Nuggets - Portland Trail Blazers    116-113    

Dallas Mavericks - Golden State Warriors    114-119    

Orlando Magic - Houston Rockets    116-109    

Atlanta Hawks - Milwaukee Bucks    114-133    

New York Knicks - Philadelphia 76ers    105-108    

Washington Wizards - Toronto Raptors    138-140 (124-124)   

Staðan í deildinni er svona

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×