Handbolti

Aron um ummæli Loga: „Logi talar aldrei vitleysu“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron ræðir við blaðamenn í dag.
Aron ræðir við blaðamenn í dag. vísir/skjáskot
Aron Pálmarsson, fyrirliði Ísland á HM í fjarveru Guðjóns Vals Sigurðssonar, segir að íslenska liðið þurfi að ná upp góðum anda og þá séu allir vegir færir á HM.

HM-hópur Íslands var tilkynntur í dag en þar var enginn Guðjón Valur Sigurðsson en fyrirliðinn er meiddur. Aron segir að þetta hafi aðeins slegið á sig.

„Mér líst vel á hópinn. Auðvitað er ákveðið sjokk að missa Guðjón út en það myndu öll lið sakna Guðjóns Vals. Það er á hreinu,“ sagði Aron á blaðamannafundi HSÍ í dag er hópurinn var kynntur.

„Sem betur fer erum við með tvo frábæra hornamenn sem geta leyst hann vel af. Ég er mjög spenntur fyrir mótinu og er ánægður með hópinn sem er að fara út.“

Aron segir að það sé ekki bara leikmaðurinn Guðjón Valur sem Ísland mun sakna heldur einnig utan vallar þar sem Guðjón hefur gert þetta oftar en einu sinni og oftar en tvsivar.

„Hann kann þetta best held ég allra í heiminum og ég held að hann eigi 21 stórmót að baki. Hann hefur unnið allt sem er hægt að vinna með félagsliðum og hefur verið í flottustu klúbbnum.“

„Hann hefur alla þessa reynslu og karakterinn í hópnum. Hann hefur verið okkar fyrirliði síðan að Óli hætti. Auðvitað verðu hans asknað en við megum heldur ekki dvelja of lengi við það.“

„Það eru bara þrír dagar í fyrsta leik og við þurfum að fókusera á það sem við höfum.“

Hvernig finnst Aroni ungu leikmennirnir sem hafa fengið tækifærið verið að standa sig?

„Mér finnst staðan góð. Það vantar aðeins jafnvægi á leikinn hjá okkur. Þeir líta vel út og eru í góðu formi. Ég er ánægðastur með hvað þeir eru með breitt bak og það er erfitt að brjóta þá niður. Þeir eru "fighterar" og þurfum að keyra það í gang á þessu móti.“

„Við erum ekki með sterkasta liðið á pappírunum en höfum marga góða eiginlega sem önnur lið hafa ekki og við þurfum gjörsamlega að ná því í botn til þess að ná í úrslit á mótinu.“

Aron segir að liðið hafi ekki rætt neinar væntingar en hefur sjálfur ákveðnar væntingar fyrir stórmótið.

„Ég hef fulla trú á því að við getum farið í milliriðla með einhver stig. Þegar ég horfi á riðilinn og horfi siðan á okkur. Maður hefur bara svo mikla trú á þessu; bæði þjálfarateyminu og leikmönnunum.“

„Ég hef bullandi trú á því að við getum farið inn í milliriðla með stig. Ég hef verið áður í landsliðinu sem við höfum verið litla liðið og við höfum unnið stærstu þjóðir í heimi. Við þurfum að fá þann anda sem voru þá til að vinna þessa leiki.“

Logi Geirsson sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að vinur sinn, Aron Pálmarsson, ætti mikið inni með íslenska landsliðinu og Aron tekur undir það með bros á vör.

„Já, Logi talar aldrei vitleysu. Ég verð að vera sammála honum. Síðustu landsleikir á þessu ári hef ég ekki náð að sína mitt 100% rétta andlit en það mun koma á HM. Ég lofa því,“ sagði fyrirliðinn að lokum.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.



Klippa: Aron á blaðmannafundi HSÍ

Tengdar fréttir

Svona var HM-hópur Íslands kynntur

Strákarnir okkar halda áleiðis til Þýskalands á morgun til þess að spila á HM. Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari tilkynnti í dag hverjir verða með í för.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×