Enski boltinn

Pep vill ekki missa Kompany

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pep elskar Kompany.
Pep elskar Kompany. vísir/getty
Pep Guardiola, stjóri Man. City, segir að fyrirliði liðsins, Vincent Kompany, sé ótrúlegur og megi ekki fara frá félaginu.

Samningur hins 32 ára gamla Kompany við liðið rennur út næsta sumar. Hann er búinn að spila 338 leiki fyrir City eftir að hann kom þangað árið 2008. Hann hefur verið fyrirliði síðan 2011.

„Ég vil endilega að hann verði áfram. Hann er fyrirliðinn okkar og hefur verið hérna í ellefu ár. Eina vandamálið er að líkaminn er slappur og hann getur bara spilað einn leik í viku,“ sagði Guardiola.

„Vincent er mjög sérstakur leikmaður og hann er einn besti miðvörður sem ég hef séð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×