Fyrsta danska þrennan í ítölsku úrvalsdeildinni í 55 ár Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. október 2019 18:00 Cornelius hafði ærna ástæðu til að fagna í gær. vísir/getty
Danski landsliðsmaðurinn Andreas Cornelius skoraði þrennu þegar Parma vann 5-1 sigur á Genoa í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Cornelius kom inn á sem varamaður á 12. mínútu. Þremur mínútum fyrir hálfleik kom hann Parma í 2-0. Hann skoraði aftur í uppbótartíma fyrri hálfleiks og á 50. mínútu gerði hann svo sitt þriðja mark. Þetta var ekki bara fyrsta þrenna Cornelius í ítölsku úrvalsdeildinni heldur fyrsta þrenna dansks leikmanns í deildinni í 55 ár. Síðasti Daninn sem skoraði þrjú mörk í einum og sama leiknum í efstu deild á Ítalíu var Harald Nielsen. Hann skoraði þrennu í 4-0 sigri Bologna á Roma 19. janúar 1964.- Andreas Cornelius is the first player from Denmark to score a Serie A hat-trick since Harald Nielsen in Bologna's 4-0 home win over AS Roma on 19 January 1964. #ParmaGenoa#SerieATIM — Gracenote Live (@GracenoteLive) October 20, 2019 Nielsen skoraði alls 21 mark þegar Bologna varð ítalskur meistari tímabilið 1963-64. Hann lék einnig með Inter, Napoli og Sampdoria á Ítalíu. Nielsen lést fyrir fjórum árum síðan. Cornelius hefur skorað fjögur mörk fyrir Parma í sjö leikjum í ítölsku úrvalsdeildinni í vetur. Sigurinn í gær var sá stærsti hjá Parma í ítölsku úrvalsdeildinni í 18 ár, eða síðan liðið vann Perugia, 5-0, í febrúar 2001.
Ítalski boltinn Mest lesið Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn Fótbolti Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Enski boltinn Dagskráin í dag: Kópavogsslagur í Bestu deildinni Sport „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Fótbolti Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Fótbolti Tekur við Napoli og verður sá launahæsti í sögunni Fótbolti „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Fótbolti „Besta kvöld lífs míns“ Fótbolti Ronaldinho mætti með stæl á úrslitaleikinn Fótbolti Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Fótbolti Fleiri fréttir „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn „Besta kvöld lífs míns“ Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Tekur við Napoli og verður sá launahæsti í sögunni „Erum á ákveðinni vegferð” Jafntefli í báðum leikjunum í Lengjudeildinni Uppgjörið: KA - ÍA 2-3 | Skagamenn sóttu sigur norður Ronaldinho mætti með stæl á úrslitaleikinn Allt í skrúfunni hjá liði Arnórs Ingva og Gísli lagði upp fyrir Halmstad Pablo fékk útkall frá landsliðsþjálfara El Salvador Kolbeinn fagnaði í Íslendingaslag í Gautaborg Afi skenkti leikmönnum Dortmund bjór KA-menn hafa geta treyst á stigin í Skagaleikjunum síðustu ár Harður stuðingsmaður Real Madrid: „Við elskum þessa keppni“ Fan Zone á hinum mikilvæga leik stelpnanna okkar á þriðjudaginn Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Cristiano Ronaldo grét eftir tap í gær Ekkert verður af kaupunum á Everton Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Sjáðu markaveisluna og magnaða endurkomu Framara á móti FH Freyr þakklátari fyrir ótrúlegustu hluti: „Búið að vera erfitt“ Courtois byrjar úrslitaleikinn „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar Sjá meira