Setti á svið eigið mannrán í síðasta leiknum á ferlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2019 23:30 Þyrla á fótboltavelli. Þessi þyrla tengist fréttinni þó ekki neitt. Getty/Erwin Spek
Þegar mikill prakkari ákvað að hætta í fótbolta þá þurfti hann að bjóða upp á eitthvað mjög sérstakt. Leikmaðurinn var settur í bann út tímabilið fyrir uppátækið en það var bitlaus refsing þar sem að þetta var nú síðasti fótboltaleikurinn hans á ferlinum. 55 ára varnarmaður í þriðju deildinni á Sikiley bauð upp á heldur betur eftirminnilegan kveðjuleik. Hann setti nefnilega á svið eigið mannrán. Allt í einu birtist þyrla á leiknum og lenti hún á miðjum fótboltavellinum. Út stigu menn sem leituðu upp Iganzio Barbagallo, tóku hann síðan með sér, fóru með hann upp í þyrluna og flugu síðan burtu. Liðsfélagar Iganzio Barbagallo hjá Viagrande þekkja hann sem mikinn prakkara og máttu því búast við því að hann endaði ferillinn með eftirminnilegum hætti.Sicilian footballer stages own 'kidnapping' in retirement stunt pic.twitter.com/j8cnNZK9Ew — Guardian sport (@guardian_sport) April 6, 2019 Guardian sagði frá þessu eftirminnilega kveðjuleik Iganzio Barbagallo eins og sjá má hér fyrir ofan. Sikiley er líklega þekktari fyrir mafíuna en nokkuð annað og það er óhætt að segja að þetta „mannrán“ hafi getað verið klippt út úr þeirri sögubók. Viagrande fékk 200 evru sekt fyrir að stefna líf fólks í hættu og var auk þess dæmt úr keppni til loka maí. Leikmaðurinn fékk líka bann út tímabilið en það bann skipti nú litlu máli því hann er hættur í fótbolta.
Fótbolti Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Sjá meira