Stjarna Phoenix Suns dæmd í 25 leikja bann fyrir að falla á lyfjaprófi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. október 2019 14:00 Ayton í leiknum gegn Sacramento Kings fyrr í þessari viku. vísir/getty
Deandre Ayton, sem var valinn fyrstur í nýliðavali NBA-deildarinnar í fyrra, hefur verið dæmdur í 25 leikja bann fyrir að falla á lyfjaprófi. Ayton var tekinn í lyfjapróf eftir fyrsta leik Phoenix Suns á tímabilinu, gegn Sacramento Kings aðfaranótt fimmtudags. Í sýni hans fannst þvagræsilyf sem er á bannlista NBA-deildarinnar. Ayton var úrskurðaður í 25 leikja bann sem tekur gildi í kvöld þegar Phoenix sækir Denver Nuggets heim. Phoenix ætlar að áfrýja banninu og vonast til að það verði stytt. Takist það ekki getur Ayton ekki spilað aftur með Phoenix fyrr en um miðjan desember. Leikmannasamtök NBA ætla einnig að beita sér fyrir því bann Aytons verði stytt eða fellt úr gildi. Ayton lék vel í leiknum gegn Sacramento. Hann skoraði 18 stig, tók ellefu fráköst og varði fjögur skot í 124-95 sigri Phoenix. Á síðasta tímabili var Ayton með 16,3 stig og 10,3 fráköst að meðaltali í leik. Hann var valinn í fyrsta úrvalslið nýliða.
NBA Mest lesið Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ Enski boltinn Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Enski boltinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Fótbolti „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Íslenski boltinn Strákarnir hans Sigga Ragga með fjögurra stiga forskot á toppnum Fótbolti Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Körfubolti Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Enski boltinn Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val Íslenski boltinn Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn Wiegman kenndi grasinu í Laugardal um Fótbolti Fleiri fréttir Selfyssingar svöruðu fyrir sig Uppgjörið: Haukar - Keflavík 85-71 | Öruggt hjá Hafnfirðingum í fyrsta leik Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Of mikil pása gæti verið slæm „Vildi að pabbi væri hérna“ Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ „Ætluðum okkur lengra en stoltur af liðinu“ „Ótrúlegar 50 mínútur af körfubolta“ Uppgjörið: KR-Stjarnan 115-118 | Stjarnan vann án Ægis og eftir tvær framlengingar Sjá meira