Yfirlýsing frá Jóni Baldvin Hannibalssyni: Án dóms og laga Jón Baldvin Hannibalsson skrifar 19. janúar 2019 06:00 Að undanförnu hefur mátt lesa í hefðbundnum fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum sögur nafngreindra kvenna um vítaverða hegðun undirritaðs gagnvart kvenþjóðinni, jafnvel hálfa öld aftur í tímann. Þessar sögur eiga það meðal annars sameiginlegt að vera ýmist hreinn uppspuni eða þvílík skrumskæling á veruleikanum, að sannleikurinn er óþekkjanlegur. Sannleikurinn er því nú þegar fyrsta fórnarlambið í þessu leikriti. Það bíður síns tíma að leiðrétta það, m.a. af eftirfarandi ástæðum: Meginástæðan er sú, að söguberar eru ýmist í nánum fjölskyldutengslum við okkur Bryndísi eða nánir vinir elstu dóttur okkar. Við Bryndís erum sammála um, að fjölskylduböl af þessu tagi – því að það er það – verði ekki útkljáð í réttarsal, né heldur til lykta leitt í fjölmiðlum. Við stefnum dóttur okkar ekki fyrir dóm – lái okkur hver sem vill. En hver er þá okkar ábyrgð á fjölskyldubölinu, sem mér er svo tíðrætt um? Ætlum við að skella allri skuld af ógæfu fjölskyldunnar á aðra? Er þetta virkilega allt öðrum að kenna? Því fer fjarri. Sjálfur ber ég þunga sök af því að hafa valdið langvarandi ósætti innan fjölskyldu Bryndísar. Bréfaskipti mín við Guðrúnu Harðardóttur, systurdóttur Bryndísar, þegar hún var 17 ára, voru hvort tveggja með öllu óviðeigandi og ámælisverð. Á því hef ég beðist margfaldlega afsökunar, bæði Guðrúnu sjálfa og fjölskyldu hennar, sem og opinberlega. Ég hef leitað eftir fyrirgefningu, en án árangurs. Á þessu máli ber ég einn ábyrgð – og enginn annar. Seinni tíma ásakanir um áreitni við Guðrúnu á barnsaldri eru hins vegar tilhæfulausar með öllu. Það mál var rannsakað í tvígang af lögreglu og saksóknara, m.a. með yfirheyrslum og vitnaleiðslum, og vísað frá í bæði skiptin, enda varð vitnum við komið. Öll gögn, sem máli skipta, liggja fyrir og eru öllum aðgengileg, m.a. á heimasíðu minni (www.jbh.is). Hvers vegna er elstu dóttur okkar svo mjög í nöp við foreldra sína, eins og raun ber vitni? Hversu margar eru þær fjölskyldur í okkar litla samfélagi, sem eiga um sárt að binda vegna geðrænna vandamála einhvers í fjölskyldunni? Hversu algengt er það ekki, að reiði og hatur, sem af hlýst, beinist fyrst og fremst að nánustu aðstandendum? Þetta er kjarni málsins. Eftir að hafa oftar en einu sinni orðið við ákalli geðlækna um nauðungarvistun elstu dóttur okkar á geðdeild, snerist vinarþel og ástúð dóttur til föður að lokum í hatur, sem engu eirir, eins og frásagnir hennar bera vott um. Nauðungarvistun er síðasta neyðarúrræði geðlæknis. Á þessum tíma þurfti að lögum heimild náins aðstandanda til að beita þessu neyðarúrræði. Dóttir okkar treysti mér einum til þess og lét bóka það. Þeir sem halda því fram, að einhver svokallaður „valdamaður“ geti sigað lögreglu á varnarlausa einstaklinga að geðþótta, vita ekki hvað þeir eru að tala um. Sem betur fer hefur þessari kvöð nú verið létt af aðstandendum. Allar tilraunir til sátta, einnig með milligöngu sálusorgara og sérfræðinga, hafa engan árangur borið. Þetta er nógu sár lífsreynsla fyrir alla, sem hlut eiga að máli, þótt ekki bætist við, að fjölmiðlar vilji velta sér upp úr ógæfu annarra með því að lepja upp einhliða og óstaðfestan óhróður, að óathuguðu máli. Það er satt að segja hreinn níðingsskapur að færa sér í nyt fjölskylduharmleik eins og þann, sem við höfum mátt búa við í áratugi, til þess að ræna fólk mannorðinu, í skjóli þess að vörnum verði vart við komið. Það verður hvorki réttlætt með sannleiksást né réttlætiskennd. Það er ekki rannsóknarblaðamennska. Það er sorp-blaðamennska. Hvað er þá til ráða til að hnekkja ósönnum og ærumeiðandi aðdróttunum í fjölmiðlum? Varðar það ekki við lög að bera ósannar sakir á aðra? Hingað til hefur það talist vera svo. Og til þess eru dómstólar í réttarríki að leiða sannleikann í ljós – útkljá málin. En eins og áður sagði, munum við Bryndís hvorki lögsækja veika dóttur okkar né þær frændsystur Bryndísar, sem hlut eiga að máli. Fremur kjósum við að láta þetta yfir okkur ganga; og bera harm okkar í hljóði að sinni. Ég vil líka taka það fram, að ómerkilegan pólitískan skæting, hvort heldur hann er framreiddur af formanni Sambands sjálfstæðiskvenna eða af fyrrverandi formanni Samfylkingarinnar, virðum við ekki svars. Það hefur ekki þótt vera neinum til vegsauka með okkar þjóð hingað til að sparka í liggjandi fólk. Og að því er varðar mína pólitísku arfleifð uni ég því vel að vera að lokum dæmdur af verkum mínum. Fyrst í stað fannst mér, að ég gæti með engu móti setið þegjandi undir öllum þessum ásökunum, ásamt persónuníðinu, sem flæðir yfir alla bakka á svokölluðum samfélagsmiðlum. Við nánari íhugun er niðurstaðan samt sú, að í þessu eitraða andrúmslofti, þar sem ósannar fullyrðingar og níð hafa fengið að grassera athugasemdalaust dögum saman, sé það til lítils annars en að skemmta skrattanum. Ekki vegna þess að þögn sé sama og samþykki; heldur vegna hins, að málflutningur sem byggir á staðreyndum, mun engin áhrif hafa á óvildarmenn mína. Við treystum því hins vegar, að það fólk, sem þekkir okkur Bryndísi persónulega af eigin reynslu, sjái í gegnum moldviðrið. Að öllu þessu virtu, er það niðurstaða okkar Bryndísar, að sálarheill okkar umsetnu fjölskyldu eigi að hafa forgang, umfram réttarhöld í kastljósi fjölmiðla, að svo stöddu. Heildstæð greinargerð, þar sem öllum framkomnum sakargiftum verði gerð verðug skil, verður því að bíða betri tíma. Því er ekki að neita, að mál af þessu tagi vekja upp ýmsar áleitnar spurningar, sem eru ekki á sviði einkamála, heldur varða almannaheill. Getum við ekki lengur treyst því, að hver maður teljist saklaus, uns hann hefur verið sekur fundinn fyrir dómi? Skal hann samt teljast sekur samkvæmt dómstóli fjölmiðla, þótt sýknaður hafi verið af réttum yfirvöldum að rannsókn lokinni? Þetta er sjálfur tilvistarvandi okkar brothætta réttarríkis. Á því berum við öll ábyrgð. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Jón Baldvin Hannibalsson Mál Jóns Baldvins Hannibalssonar Tengdar fréttir Fresta útgáfu afmælisbókar Jóns Baldvins Bókin átti að koma út í febrúar í tilefni þess að ráðherrann fyrrverandi verður áttatíu ára. 15. janúar 2019 16:42 Segir Jón Baldvin hafa misnotað stöðu sína sem sendiherra við nauðungarvistun Aldís Schram, dóttir Jóns Baldvins Hannibalssonar fyrrverandi ráðherra og sendiherra, segir föður sinn hafa misnotað aðstöðu sína sem sendiherra er hann óskaði eftir því að hún yrði nauðungarvistuð á geðdeild. 17. janúar 2019 09:36 Guðrún segir tíðarandann annan í dag en þegar hún greindi frá bréfum Jóns Baldvins Segir viðbrögðin árið 2012 hafa verið skell fyrir sig. 14. janúar 2019 11:46 „Verður að stöðva þessa perverta sem telja sig guðsgjöf til kvenna“ Jón Baldvin var alræmdur á Ísafirði meðan hann var skólameistari þar. 14. janúar 2019 13:51 Jón Baldvin borinn þungum sökum um kynferðisbrot MeToo-hópur á Facebook hefur verið stofnaður vegna fyrrverandi utanríkisráðherra auk þess sem fimm konur hafa greint frá meintri áreitni hans í Stundinni í dag og í gær. 12. janúar 2019 22:00 Mest lesið Öndum rólega – á meðan húsið brennur Magnús Magnússon Skoðun Ferðalag úr fangelsi hugans Sigurður Árni Reynisson Skoðun Kristrún, það er bannað að plata Snorri Másson Skoðun Umbylting ríkisfjármála á átta mánuðum Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun „Akademísk sniðganga“: gaslýsingar og hnignun háskólasamfélagsins Birgir Finnsson Skoðun Friðum Eyjafjörð Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir Skoðun Hraðahindranir fyrir strætó Sveinn Ólafsson Skoðun Vitundarvakning um auðlindir þjóðar Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það eru allir að greinast með þetta POTS – hvað er það? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Öndunaræfingar í boði SFS Vala Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kristrún, það er bannað að plata Snorri Másson skrifar Skoðun Öndunaræfingar í boði SFS Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Öndum rólega – á meðan húsið brennur Magnús Magnússon skrifar Skoðun Umbylting ríkisfjármála á átta mánuðum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Átta atriði sem sýna fram á vanda hávaxtastefnunnar Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun 50 þúsund nýir íbúar – Hvernig tryggjum við samheldni? Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Framtíð nemenda í fyrsta sæti í Kópavogi Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Að setjast í fyrsta sinn á skólabekk Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Ferðalag úr fangelsi hugans Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hraðahindranir fyrir strætó Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Íslenzkir sambandsríkissinnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Garðurinn okkar fyllist af illgresi Davíð Bergmann skrifar Skoðun Nýtt landsframlag – og hvað svo? Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar Skoðun Fágætir dýrgripir í Vestmannaeyjum Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Gjaldskyldulandið Ísland - Viltu hafa bílastæðagjald við hverja lækjarsprænu? Hermann Helguson skrifar Skoðun Gervigreind er ekki sannleiksvél – en við getum gert svörin traustari Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Er einnig von á góðakstri Strætó í ár? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Ferðumst saman í Reykjavík Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Þúsundir barna bætast við umferðina Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Þau sem hlaupa í átt að hættunni þegar aðrir flýja Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Öndum rólega Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Réttur barna versus veruleiki Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Framtíð villta laxins hangir á bláþræði Elvar Örn Friðriksson skrifar Skoðun „Akademísk sniðganga“: gaslýsingar og hnignun háskólasamfélagsins Birgir Finnsson skrifar Skoðun Við lifum ekki á tíma fasisma Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Fíknisjúkdómur – samfélagsleg ábyrgð sem við þurfum að takast á við Halldór Þór Svavarsson skrifar Skoðun Ætlar ríkið að stuðla að aukinni tóbaksneyslu á Íslandi? Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Bílastæðavandi í Reykjavík – tími til aðgerða Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Þakkir til Sivjar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Fráleit túlkun á fornum texta breytir ekki staðreyndum Ómar Torfason skrifar Sjá meira
Fresta útgáfu afmælisbókar Jóns Baldvins Bókin átti að koma út í febrúar í tilefni þess að ráðherrann fyrrverandi verður áttatíu ára. 15. janúar 2019 16:42
Segir Jón Baldvin hafa misnotað stöðu sína sem sendiherra við nauðungarvistun Aldís Schram, dóttir Jóns Baldvins Hannibalssonar fyrrverandi ráðherra og sendiherra, segir föður sinn hafa misnotað aðstöðu sína sem sendiherra er hann óskaði eftir því að hún yrði nauðungarvistuð á geðdeild. 17. janúar 2019 09:36
Guðrún segir tíðarandann annan í dag en þegar hún greindi frá bréfum Jóns Baldvins Segir viðbrögðin árið 2012 hafa verið skell fyrir sig. 14. janúar 2019 11:46
„Verður að stöðva þessa perverta sem telja sig guðsgjöf til kvenna“ Jón Baldvin var alræmdur á Ísafirði meðan hann var skólameistari þar. 14. janúar 2019 13:51
Jón Baldvin borinn þungum sökum um kynferðisbrot MeToo-hópur á Facebook hefur verið stofnaður vegna fyrrverandi utanríkisráðherra auk þess sem fimm konur hafa greint frá meintri áreitni hans í Stundinni í dag og í gær. 12. janúar 2019 22:00
Skoðun Gjaldskyldulandið Ísland - Viltu hafa bílastæðagjald við hverja lækjarsprænu? Hermann Helguson skrifar
Skoðun Gervigreind er ekki sannleiksvél – en við getum gert svörin traustari Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Fíknisjúkdómur – samfélagsleg ábyrgð sem við þurfum að takast á við Halldór Þór Svavarsson skrifar