Langt í land hjá SAS og flugmönnum Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. maí 2019 11:45 Verkfallsaðgerðir flugmanna SAS hafa haft áhrif á ferðir 320 þúsund farþega síðustu daga. EPA/OLE BERG RUSTEN
Flugfélagið SAS hefur alls aflýst 709 ferðum í dag vegna verkfalls flugmanna. Áætlað er að ákvörðunin muni hafa áhrif á ferðaáætlanir um 54 þúsund farþega. Lítill gangur virðist vera í viðræðum flugmanna og SAS ef marka má frétt sænska ríkisútvarpsins. Viðræðurnar hófust aftur í gær, eftir að þeim var slitið í síðustu viku, og var fundað fram á nótt í Osló. Í tilkynningu frá SAS segir að sökum vinnustöðvunarinnar hafi verið tekin ákvörðun um að fella niður 429 ferðir í dag til viðbótar við þær 280 sem áður hafði verið greint frá. Heildarfjöldi niðurfelldra ferða er því 709 sem fyrr segir. Haft er eftir Mats Wilhelm Ruland, ríkissáttasemjara Noregs, að enn sé langt á milli deiluaðila og að engin lausn sé sem stendur í augsýn. SAS hefur greint frá því að flugmenn fari fram á 13 prósenta launahækkun. Flugfélagið segist hins vegar ekki geta boðið þeim meira en 2,3 prósent hækkun.Sjá einnig: Strandaglópur sem pantaði þó aldrei með SASStéttarfélag flugmanna hefur þó lýst því yfir að launaliðurinn sé ekki helsti ásteytingarsteinninn í viðræðunum. Flugmenn leggi frekar áherslu á breytingar á vinnufyrirkomulaginu. Verkfallsaðgerðir hófust fyrir sex dögum síðan þegar 1409 flugmenn SAS; 372 í Danmörku, 545 í Noregi og 492 í Svíþjóð, lögðu niður störf. Talið er að aðgerðirnar hafi þegar haft áhrif á um 320 þúsund farþega. Áætlað er að kostnaður SAS vegna aðgerðanna nemi á bilinu 60 til 80 milljónum sænskra króna, allt að milljarði íslenskra króna, á degi hverjum. Samhliða verkfallsaðgerðunum ákvað SAS að segja tímabundið upp 930 norskum flugfreyjum í gær. Uppsagnirnar taka ekki til starfsfólks í Danmörku og Svíþjóð, því þarlend vinnumarkaðslöggjöf girðir fyrir slíkar aðgerðir að sögn norskra miðla.
Finnland Fréttir af flugi Noregur Svíþjóð Tengdar fréttir Sáttatónn í SAS-deilunni en fleiri flugferðum aflýst Vonir standa til þess að flugfélagið SAS geti hafið flug að nýju samkvæmt áætlun eftir hádegi á morgun. 1. maí 2019 11:20 Strandaglópur sem pantaði þó aldrei með SAS Rúmlega 1400 flugmenn SAS í Noregi, Svíþjóð og Danmörku lögðu niður störf í gærkvöldi eftir að kjaraviðræður þeirra runnu út í sandinn. 26. apríl 2019 09:00 Mest lesið Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Fleiri fréttir Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Ólígarkar unnu mál vegna refsiaðgerða fyrir Evrópudómstól Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar Rekja meirihluta heimslosunar til 57 framleiðenda Í basli með viðhald og viðgerðir á olíuvinnslum Taylor Swift meðal 265 nýliða á milljarðamæringalista Forbes Wow lifir enn góðu lífi í undraheimi Roosevelt Edwards Sjá meira
Sáttatónn í SAS-deilunni en fleiri flugferðum aflýst Vonir standa til þess að flugfélagið SAS geti hafið flug að nýju samkvæmt áætlun eftir hádegi á morgun. 1. maí 2019 11:20
Strandaglópur sem pantaði þó aldrei með SAS Rúmlega 1400 flugmenn SAS í Noregi, Svíþjóð og Danmörku lögðu niður störf í gærkvöldi eftir að kjaraviðræður þeirra runnu út í sandinn. 26. apríl 2019 09:00