Bílar

Páfinn velur Dacia Duster fram yfir Benz, Range Rover og Lamborghini

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Páfinn við Dacia Duster bifreið sína.
Páfinn við Dacia Duster bifreið sína. Vísir/Autocar
Renault hefur gefið Francis páfa sérsmíðaðan Dacia Duster bíl til að spóka sig um á í Vatíkaninu.

Duster-inn sem Francis fékk hefur verið sérhannaður til að mæta þörfum páfans. Sem dæmi hafa sérstaklega þægileg aftursæti verið sett í bílinn til að mæta þörfum gamals manns sem oft þarf að taka þátt í lögum skrúðgöngum.

Þá hefur einkar voldug sóllúga verið sett í bílinn auk þess sem glært sýningabox fylgdi bílnum sem í er hægt að sýna almúganum páfann.

Páfinn á rúntinum í Duster.Vísir/TheStar
Þá er Duster-inn klæddur hvítu leðri að innan og hefur fjöðrun hans verið lækkuð um 30 mm til að auðvelda enn frekar aðgengi að bílnum.

Bíllinn var afhentur Vatíkaninu af Christophe Dridi yfirmanni Renault samsteypunnar í Rúmeníu og Xavier Martinet yfirmanni Renault á Ítalíu.

Þessi bíll er þó ekki fyrstu Dacia bíllinn sem páfinn eignast. Hann notaði óbreyttan Dacia Logan í opinberri heimsókn til Armeníu árið 2016. Núverandi páfi vill ýta undir sparneytni og nægjusemi. Fyrirrennarar hans hafa verið hylltari undir Mercedes-Benz og Range Rover.

Páfinn virðist skammast sín fyrir bílaval forvera sinna í heilögu embætti.Vísir/Getty
Árið 2017, til að mynda gaf Lamborghini Francis Huracán sem var sérstaklega sprautaður í litum Vatíkansins. Eftir að páfinn blessaði bílinn og skrifaði eiginhandaráritun á hann var bíllinn seldur á uppboði til styrktar góðgerðarmálefnis. Sem ýtir undir þá kenningu að Francis aðhyllist sparneytna og látlausa bíla.


Tengdar fréttir

Páfinn flaug með Atlanta

Íslenska flugfélagið Air Atlanta flaug í gær með Frans páfa heim til Rómar úr ferðalagi hans til Afríku en í tilkynningu frá flugfélaginu kemur fram að páfinn hafi verið bæði vingjarnlegur og auðmjúkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×