Ekki spilað mínútu með Chelsea á tímabilinu en gerði samt nýjan 5 ára samning Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. september 2018 17:00 Ethan Ampadu er orðinn fastamaður í velska landsliðinu en kemst ekki í hópinn hjá Chelsea. Vísir/Getty
Chelsea hefur gert nýjan fimm ára samning við Ethan Ampadu. Leikmaðurinn hefur þó enn ekki spilað mínútu með aðalliði félagsins á leiktíðinni. Það er búist við miklu af stráknum í framtíðinni enda er þetta efni í fjölhæfan leikmann sem getur bæði spilað á miðjunni og í vörninni. Ethan Ampadu er átján ára gamall og hann hefur þegar unnið sér sæti í velska landsliðinu þrátt fyrir að fá engin tækifæri hjá Chelsea. Ethan Ampadu lagði meðal annars upp mark í 4-1 sigri Wales á Írlandi í Þjóðadeildinni á dögunum. Hann var í byrjunarliðinu í báðum leikjum. Strákurinn spilaði einnig sjö leiki fyrir Antonio Conte á síðustu leiktíð. Það fer ekkert á milli mála að þarna gæti verið framtíðar miðjumaður Chelsea á ferðinniCongratulations, @ethanamp4! Head to the Chelsea app to hear exclusively from the young Blue himself! https://t.co/QmZkmocGxt — Chelsea FC (@ChelseaFC) September 19, 2018„Ég er virkilega stoltur og ánægður. Ég hlakka til næstu fimm ára og það eina sem ég þarf að gera núna er að halda áfram að leggja hart að mér og þá gerast vonandi góðir hlutir,“ sagði Ethan Ampadu við heimasíðu Chelsea.We have some Ethan Ampadu news in the Chelsea app this morning...https://t.co/zhGX5RJAjcpic.twitter.com/E9wF0LVsRI — Chelsea FC (@ChelseaFC) September 19, 2018Chelsea hefur spilað sex leiki á tímabilinu en Ethan Ampadu hefur aldrei verið í hópnum. Hann fór aftur á móti ekki á láni til annars félags og hefur nú gengið frá samningi sem gildir til 2023. Ethan Ampadu spilaði sjö leiki með aðalliði Chelsea á síðustu leiktíð. Hann spilaði þrjá leiki bæði í bikarnum og í deildarbikarnum og var í byrjunarliðinu í tveimur leikjum í hvorri keppni. Ampadu kom við sögu í einum leik í ensku úrvalsdeildinni eða þegar hann kom inná sem varamaður fyrir Andreas Christensen tíu mínútum fyrir leikslok í leik á móti Huddersfield í desember.
Enski boltinn Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Fleiri fréttir Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Sjá meira