Patti: Hefðum getað unnið, annað mál hvort við ættum það skilið Ástrós Ýr Eggertsdóttir í Hleðsluhöllinni og Selfossi skrifa 24. september 2018 21:39 Patrekur Jóhannesson, þjálfari Selfoss vísir
Selfoss og Afturelding skildu jöfn í Hleðsluhöllinni í Iðu í kvöld þegar liðin mættust í þriðju umferð Olís deildar karla. Afturelding leiddi mest allan leikinn en lokamínúturnar voru æsispennandi. „Mér fannst við byrja ágætlega varnarlega, vorum þéttir, en sóknarlega vorum við ekki nógu góðir fannst mér. Við vorum að klikka og fara svolítið úr skipulagi miðað við hvað við ætluðum að gera,“ sagði Patrekur Jóhannesson, þjálfari Selfoss, í leikslok. „Við vorum svolítið að elta Aftureldingu og jú, ég er ánægður með eitt stig úr því sem komið var.“ Selfyssingar voru komnir í smá holu í fyrri hálfleik þegar Patrekur breytir um varnarskipulag og þeir ná að vinna sig inn í leikinn aftur. „Það er stundum taktík að breyta ekki neitt og bíða eftir því að vörnin virki. En ég viðurkenni það alveg að ég breytti mjög mikið í þessum leik.“ „Við hefðum líka getað fengið bæði stigin, en hvort við hefðum átt það skilið, það er annað mál. Afturelding spilaði vel. Þeir héngu lengi á boltanum og voru agaðir og refsuðu með hraðaupphlaupum.“ Hvað er það helsta sem Patrekur tekur úr leik sinna manna? „Erfitt að segja til núna strax, en við þurfum bara að fara vel yfir þetta. Núna eru þrír leikir búnir og við erum með fimm stig.“ „Evrópukeppnin er næsta verkefni í Slóveníu, þá koma fimm leikir á einhverjum fimmtán dögum,“ sagði Patrekur Jóhannesson.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti FH - Þróttur | Mikilvægt fyrir titilbaráttuna að fá sigur Íslenski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira