Nýjar vikutölur úr laxveiðiánum Karl Lúðvíksson skrifar 29. júní 2018 11:00 Stefán Sigurðsson með lax úr Urriðafossi en það er annað aflahæsta veiðisvæði landsins Mynd: Iceland Outfitters
Þá er laxveiðitímabilið komið vel í gang og flestar árnar opnaðar og þær síðustu opna núna 1. júlí. Landssamband Veiðifélaga hefur birt nýjar tölur úr laxveiðiánum eins og gert er vikulega og það má sjá að aðstæður í ánum á vesturlandi virðast hafa nokkur áhrif á veiðina. Árnar voru mjög bólgnar og duttu sumar þeirra í lit. Ofan á þetta var bæði hvasst og mikil rigning sem gerði veiðimönnum lífið heldur leitt. Áin sem á stærsta sprettinn í tölum er Þverá og Kjarrá er heildarveiðin þar er komin í 452 laxa sem er um fjórðungur af heildarveiði síðasta árs en þá veiddust 2060 laxar í ánni sem var bara prýðilegt ár. Miðað við hvað það er stutt liðið á veiðitímann og júlímánuður allur eftir og hann er sá mánuður sem gefur bestu veiðina sýnist okkur á Veiðivísi nokkuð ljóst að áin fari yfir töluna í fyrra. Skilyrðin í ánum á vesturlandi eru þó að skána mikið og það má því reikna með góðu stökki í veiðitölum í næstu viku með auknum göngum, betri veiðiskilyrðum og það er líka stórstreymt á sunnudaginn en þessi straumur skilar oftar en ekki góðum göngum í árnar. Topp fimm listinn yfir aflahæstu ár landsins er: 1. Þverá/Kjarrá 452 laxar 2. Urriðafoss,Þjórsá 391 lax 3. Norðurá 351 lax 4. Miðfjarðará 177 laxar 5. Blanda 175 laxar Listann í heild sinni má finna á www.angling.is
Mest lesið Laxveiðileyfi undir 20 þúsund krónum Veiði Góð rjúpnaveiði um allt land í gær Veiði Kvennahollin áttu vikuna í Langá Veiði Fékk 20 laxa á einum degi þar af fjóra yfir 20 pund Veiði Zeldan er einföld en gjöful fluga Veiði Þegar stóru hængarnir fara á stjá Veiði Aukin veiði fjölgar refum Veiði Spá að Miðfjarðará fari yfir 4.000 laxa Veiði Hvernig nærðu draumalaxinum? Veiði Líf á Bíldsfelli Veiði