„Rashford verður ekki markaskorari á Old Trafford“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 10. september 2018 09:00 Rashford misnotaði tvö góð færi í leiknum við Spánverja á laugardag Vísir/Getty
Marcus Rashford þarf að yfirgefa Old Trafford ef hann vill verða hreinræktaður framherji og markaskorari. Þetta segir Alan Shearer. Shearer er goðsögn á meðal margra stuðningsmanna enska boltans, hann spilaði 767 fótboltaleiki á ferlinum og skoraði heilan helling af mörkum. Eftir að ferlinum lauk hefur hann fært sig yfir í fjölmiðla og er virtur knattspyrnusérfræðingur. Í pistli sem birtist í The Sun segir Shearer að Rashford þurfi að komast í annað félag og undir stjórn annars knattpsyrnustjóra ef hann ætlar að verða hreinræktaður framherji.Shearer á 379 mörk í efstu deild á Englandi á nærri tuttugu ára ferlivísir/getty„Ég er mikill aðdáandi Marcus Rashford. Hann kemur sér í góðar stöður, hleypur inn fyrir varnarmenn og er stöðugt ógnandi,“ byrjaði Shearer pistil sinn. „Markið hans á Wembley á laugardaginn [gegn Spáni í Þjóðadeildinni] sýndi hver hann er. Því miður sýndu færin tvö sem hann klúðraði einnig hvar hann er staddur í augnablikinu.“ Shearer segir framherja sem spilar reglulega sem fremsti maður ekki hafa klúðrað þessum færum. „Af þeim 126 leikjum sem Rashford hefur spilað í fyrir Manchester United er ég ekki viss í hve mörgum hann spilaði sem framherji.“ „Á meðan Romelu Lukaku er heill heilsu mun Rashford ekki fá byrjunarliðssæti sem eini framherjinn. Á meðan Jose Mourinho er knattspyrnustjórinn mun Untied ekki spila með tvo framherja.“ „Jafnvel ef Lukaku byrjar ekki þá held ég Alexis Sanchez yrði settur fremstur. Mun Mourinho virkilega snúa sér að Rashford ef honum vantar annan framherja, eða fer hann og kaupir sér þekktan markaskorara?“ „Ég er ekki að segja að Rashford eigi að yfirgefa Manchester United, það er frábært félag. En ef hann ætlar að verða þekktur sem frábær markaskorari þá mun það ekki gerast á Old Trafford,“ sagði Alan Shearer. Pistilinn í heild sinni má lesa hér.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira