Zinedine Zidane segir stutt í það að hann snúi aftur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. september 2018 09:30 Zinedine Zidane skoðar bikarinn sem hann hefur unnið einu sinni sem leikmaður og þrisvar sinnum sem stjóri. Vísir/Getty
Jose Mourinho stýrði Manchester United til sigurs í síðasta leik fyrir landsleikjahlé en orðrómurinn um Zinedine Zidane er ekkert að deyja. Orð Zinedine Zidane í sjónvarpsviðtali á Spáni um helgina ættu líka að virka eins og olía á eld þegar kemur að fréttum um að Frakkinn bíði eftir því að verða „skipt“ inná fyrir Jose Mourinho. Zinedine Zidane hætti með lið Real Madrid síðasta vor eftir að hafa unnið níu titla á tveimur og hálfu ári og stýrt liðinu til sigurs í Meistaradeildinni þrjú ár í röð. Nú segist þessi knattspyrnugoðsögn vera tilbúinn að snúa aftur í boltann og það sem fyrst. Sjónvarpsmaður TVE, spænska ríkissjónvarpsins, spurði Zidane hreint út hvort hann væri að koma til baka í þjálfun. „Já án nokkurs vafa. Það er stutt í það að ég snúi aftur því þar vil ég vera og þar hef ég verið alla mína ævi,“ svaraði Zinedine Zidane. Zidane hitti sjónvarpsfólkið á leik með syni sínum Elyaz en sá var að spila með einu af unglingaliðum Real Madrid.[#Décla] Zidane : "Il est certain que, d'ici peu, je retournerai entraîner parce que c'est ce que j'aime et c'est ce que j'ai fait toute ma vie." TVE pic.twitter.com/GR16cPXlzc — Footballogue (@Footballogue) September 10, 2018Það var margt gott við sigurinn á Burnley og ekki síst það að Manchester United liðinu tókst að halda hreinu í fyrsta sinn á leiktíðinni eftir að hafa fengið á sig sex mörk í tveimur leikjum á undan. Það þarf aftur á móti meira en 2-0 sigur á Burnley til að létta pressunni af Jose Mourinho og þá sérstaklega þegar maður eins og Zinedine Zidane liggur á húninum. Fyrsti leikur Manchester United eftir landsleikjahlé er á móti Watford um næstu helgi en Watford liðið hefur verið á miklu flugi og er búið að vinna fjóra fyrstu leiki sína. Leikurinn er líka á Vicarage Road þar sem Tottenham tapaði 2-1 í síðustu umferð en þrír af fjórum fyrstu leikjum liðsins hafa verið á heimavelli.
Enski boltinn Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Sjá meira