Ian Rush skoraði tvö þegar Liverpool komst síðast á toppinn eftir 1. umferð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2018 22:00 Ian Rush var fyrirliði Liverpool þegar liðið byrjaði tímabilið síðast í efsta sæti. Hér fagnar hann marki það tímabil. Vísir/Getty
Liverpool er á toppnum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir 4-0 sigur á West Ham í gær. Liverpool vann stærsta sigur helgarinnar. Það þarf að fara allt til haustsins 1994 til að finna hvenær Liverpool var síðast í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir fyrstu umferð. Liverpool sat þá í efsta sætinu eftir 6-1 sigur á Crystal Palace í fyrstu umferðinni en leikurinn fór fram á Selhurst Park í London.#OJOALDATO - El Liverpool es líder de la Premier League por primera vez desde el 6 de noviembre de 2016. No lo era en la primera jornada del campeonato desde 1994, tras un 1-6 ante el Crystal Palace en el que anotaron Mølby, McManaman (2), Fowler y Rush (2). pic.twitter.com/umiwf9WKbt — MisterChip (Alexis) (@2010MisterChip) August 12, 2018 Danski miðjumaðurinn Jan Mölby skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu á 12. mínútu og tveimur mínútum síðar var Steve McManaman búinn að kom Liverpool í 2-0. Robbie Fowler skoraði þriðja markið á lokamínútu fyrri hálfleiks. Steve McManaman bætti við sínu öðru marki í seinni hálfleik inn á milli marka frá fyrirliðanum Ian Rush. Liverpool vann þrjá fyrstu leiki sína þetta tímabil (3-0 á móti Arsenal og 2-0 á móti Southampton) en gaf svo eftir. Fyrsta tapið kom á móti Manchester United 17. september og fimm leiki í röð án sigurs í nóvember og desember enduðu svo gott sem allar titilvonir liðsins. Liverpool-liðið endaði í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar á eftir Blackburn Rovers (enskur meistari), Manchester United og Nottingham Forest Liverpool vann hinsvegar titil þetta tímabil því liðið vann 2-1 sigur á Bolton Wanderers á gamla Wembley í úrslitaleik enska deildabikarsins. Steve McManaman skoraði bæði mörkin í leiknum.
Enski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira