Meiðslavandræðin ætla engan endi að taka hjá Aftureldingu Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. janúar 2018 10:00 Árni Bragi Eyjólfsson er einn besti leikmaður Olís-deildarinnar. vísir/eyþór
Meiðslavandræði Aftureldingar í Olís-deild karla í handbolta virðast enga endi ætla að taka. Nú er Árni Bragi Eyjólfsson, markahæsti leikmaður liðsins og annar af tveimur yfirburðarmönnum þess samkvæmt HB Statz, kominn á sjúkralistann. Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að Árni Bragi sneri sig á ökkla í síðasta leik Mosfellinga á fjögurra liða æfingamóti í Finnlandi á dögunum. Vonast var til að þetta væri minniháttar en í ljós kom að hann verður frá keppni næstu vikurnar. Árni Bragi er markahæstur í liði Aftureldingar í Olís-deildinni með 89 mörk í 14 leikjum eða 6,4 mörk að meðaltali í leik. Hann er helsta hraðaupphlaupsógn Mosfellinga og er með næsthæstu einkunn leikmanna liðsins á HB Statz eða 7,25. Elvar Ásgeirsson, sem er tölfræðilega besti leikmaður liðsins með 7,28 í einkunn, meiddist illa þegar að hann rann í hálku um jólin og er tímabilinu lokið hjá honum. Fyrir á sjúkralistanum eru Birkir Benediktsson og Pétur Júníusson. Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar, mætir því með ansi laskað lið til leiks þegar að Olís-deildin fer aftur af stað í næstu viku.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira