Segja Juventus ætla að kaupa Pogba næsta sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. september 2018 08:30 Paul Pogba varð að einum besta miðjumanni heims hjá Juventus. Vísir/Getty
Paul Pogba snéri aftur til Manchester United sumarið 2016 og nú lítur út fyrir að hann gæti snúið aftur til Juventus sumarið 2019. Ítalska blaðið Tuttosport slær því upp í morgun að Juventus ætli að kaupa franska heimsmeistarann næsta sumar. Það yrði vissulega mjög spennandi að sjá fyrir sér Cristiano Ronaldo og Paul Pogba spila saman í búningi Juventus en um leið pirrandi fyrir stuðningsmenn Manchester United sem dreymdi marga um að Ronaldo kæmi aftur „heim“ á Old Trafford og spilaði þar við hlið Pogab. Mikið hefur verið rætt og skrifað um óánægju Paul Pogba í herbúðum Manchester United upp á síðkastið og hann hefur ýtt undir það sjálfum með opnum og áhugaverðum viðtölum um framtíð sína. Juventus keypti Cristiano Ronaldo frá Real Madrid í sumar fyrir hundrað milljónir evra auk bónusa. Ítalska félagið er aftur á móti stórhuga og ætlar að hoppa inn í annað risasumar á félagsskiptamarkaðnum samkvæmt þessum sögusögnum frá Ítalíu. Það fylgir líka sögunni í frétt Tuttosport að félagið ætli einnig að fá Brasilíumanninn Marcelo frá Real Madrid. Fyrirsögnin á fréttinni er að ekkert sé nú lengur ómögulegt fyrir Juventus. Paul Pogba er 25 ára gamall og ætti því að eiga sín bestu ár eftir. Hann spilaði með Juventus frá 2012 til 2016 eða frá 19 ára til 23 ára aldurs. Á þessum tíma varð hann einn besti miðjumaður heims. Paul Pogba hefur aðeins spilað með tveimur félögum í meistaraflokki því hann kom árið 2009 til Manchester United og var með unglingalið félagsins í tvö ár. Hann kom síðan inn í aðalliðið 2011 en fékk litið að spreyta sig og vildi í framhaldinu fara til Ítalíu.
Enski boltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Íslenski boltinn Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Sport „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Sjá meira