Michael Owen hataði síðustu árin á ferlinum: „Þetta var hræðilegt“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 27. ágúst 2018 08:00 Owen spilaði fyrir Manchester United undir lok ferils síns Vísir/Getty
Michael Owen var einn efnilegasti fótboltamaður heims þegar hann var ungur. Meiðsli komu í veg fyrir að hann næði þeim hæðum sem margir bjuggust við og hann hataði síðustu ár ferils síns. Owen var í opinskáu viðtali á BT Sport um helgina þar sem hann fór yfir feril sinn. Owen skoraði 222 mörk í 482 leik á ferlinum og spilaði fyrir Liverpool, Real Madrid, Newcastle, Manchester United og Stoke. Hann á einnig 40 landsliðsmörk í 89 leikjum fyrir England. Árið 2001 fékk hann Gullboltann aðeins 21 árs. Verðlaun sem veitt eru besta fótboltamanni ársins. Hann er aðeins einn af fjórum Englendingum sem hafa unnið veðrlauninn. „Ég fékk Gullboltann afhentan hér [á Anfield] en ég hugsaði bara: Farið með hann í burtu, ég þarf að fara að spila leik,“ sagði Owen þegar hann rifjaði upp þetta augnablik.Owen átti frábæran feril með Liverpoolvísir/getty„Þú getur pússað verðlaunin þín þegar þú ert hættur. Á meðan ferlinum stendur ertu alltaf að hugsa um næsta leik, hvar eru næstu verðlaun sem ég get náð í.“ Owen fór til Manchester United árið 2009 og var þar til árið 2012. Á þessum þremur árum spilaði hann 52 leiki og skoraði 17 mörk. Hann fór til Stoke sumarið 2012 og á síðasta ári ferilsins tók hann aðeins þátt í níu leikjum og skoraði eitt mark. „Síðustu sex, sjö árin á ferlinum var ég skíthræddur við að spretta og hlaupa í svæði því ég gæti rifið eitthvað. Það versta sem þú getur gert er að efast og hika.“ „Ég hataði þennan tíma. Ég gat ekki beðið eftir því að hætta síðustu árin á ferlinum. Ég var ekki ég.“ „Ég gat ennþá skorað, ég vissi hvert boltinn var að fara og gat mætt og klárað. Svo undir lokin hugsuðu allir: Michael Owen er frábær markaskorari en getur ekki mikið annað.“ „Þessi ár voru hræðileg.“ „Ég dáist að fólki sem spilar fyrir ástina á leiknum. En fyrir mig var þetta hræðilegt,“ sagði Michael Owen. Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira