Efnisskráin fjölbreytt og í takt við anda og sögu staðarins Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 29. júní 2018 14:30 Elmar, Björg , Elísabet, Hilmar Örn og Guðni. Vísir/Sigtryggur Ari
Hin árlega tónlistarhátíð Englar og menn hefst í Strandarkirkju í Selvogi á sunnudaginn klukkan 14. Tónleikarnir nefnast Í drottins ást og friði og þar koma fram Björg Þórhallsdóttir sópran, Elmar Gilbertsson tenór, Elísabet Waage hörpuleikari, Guðni Franzson klarínettuleikari og Hilmar Örn Agnarsson organisti. Þau flytja sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns, Emil Thoroddsen, Beethoven, Donizetti og fleiri. Björg Þórhallsdóttir er umsjónarmaður tónleikanna að venju. „Hátíðin stendur yfir frá 1. júlí til 12. ágúst og þar koma fram margir fremstu söngvara og hljóðfæraleikara landsins,“ segir hún. Efnisskráin er fjölbreytt og í takt við anda og sögu staðarins. Björg lýsir því sem fram undan er: „Annan sunnudag kemur Bjarni Frímann Bjarnason píanóleikari fram ásamt Jónu G. Kolbrúnardóttur sópran, Kristínu Önnu Guðmundsdóttur sópran og Pétri Björnssyni fiðluleikara. Sunnudaginn 15. júlí verða Sólrún Bragadóttir og Ágúst Ólafsson barítón hjá okkur og með þeim leikur Jón Sigurðsson á orgel og píanó. Söngkonurnar Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópran og Hanna Dóra Sturludóttir mezzósópran verða hjá okkur sunnudaginn 22. júlí og með þeim leikur Ástvaldur Traustason á orgel og harmóníku. Þann 29. júlí ætla feðginin Valgeir Guðjónsson og Vigdís Vala Valgeirsdóttir að gleðja áheyrendur og 5. ágúst verða söngvararnir Hildigunnur Einarsdóttir alt og Jón Svavar Jósefsson barítón með dagskrá tileinkaða Halldóri Laxness.“ Hátíðinni lýkur með Maríumessu og tónleikum 12. ágúst en þar syngja Björg og Diddú, Elísabet Waage og Hilmar Örn Agnarsson spila og séra Baldur Kristjánsson annast guðþjónustuna.
Tónlist Mest lesið Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Lífið Arnar Þór selur Arnarneshöllina Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Lífið Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti Tíska og hönnun Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Lífið Mömmu þykir ekki vænna um Friðrik Dór en Jón Ragnar Lífið Fleiri fréttir Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur „Svolítið eins og að standa nakinn inni í vita“ Líf og fjör á Grímunni Ást Fedru og Saknaðarilmur fengu fern Grímuverðlaun hver Margrét Helga hlýtur heiðursverðlaun Grímunnar „Leikmyndin er auðvitað algjört rusl“ Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Sjá meira