Viðskipti erlent

Facebook gaf tæknirisum víðtækari aðgang en stjórnendur viðurkenndu

Kjartan Kjartansson skrifar
Zuckerberg og aðrir stjórnendur Facebook hafa lofað bót og betrun í meðhöndlun persónuupplýsinga notenda. Enn virðist langt í land þar.
Zuckerberg og aðrir stjórnendur Facebook hafa lofað bót og betrun í meðhöndlun persónuupplýsinga notenda. Enn virðist langt í land þar. Vísir/EPA
Stór tæknifyrirtæki eins og Microsoft og Amazon fengu vildarkjör hjá samfélagsmiðlarisanum Facebook sem gerði þau í reynd undanþegin gagnaleyndarreglum miðilsins. Leitarvél Microsoft fékk meðal annars aðgang að upplýsingum um nærri alla vini Facebook-notenda án leyfis þeirra og vinsælar streymissíður fengu leyfi til að skoða og eiga við einkaskilaboð notenda.

Bandaríska dagblaðið New York Times birti í gær viðamikla umfjöllun um vinnubrögð Facebook sem byggjast á innanhússgögnum fyrirtækisins og viðtölum við um fimmtíu fyrrverandi starfsmenn Facebook og samstarfsfyrirtækja þess.

Það segir að fyrirkomulagið við tæknirisana hafi verið í beggja þágu. Facebook bætti við sig notendum sem gátu átt samskipti við vini þvert á samfélagsmiðla og vefsíður á meðan tæknifyrirtækin gátu gert vörur sínar eftirsóknarverðari með því að nýta sér persónuupplýsingar notenda.

Á meðal þeirra sem nutu góðs af samstarfinu við Facebook voru streymissíðurnar Netflix og Spotify sem gátu lesið einkaskilaboð Facebook-notenda. Amazon gat komist yfir nöfn og heimilisföng notenda í gegnum vini þeirra á Facebook og Yahoo fékk að fylgjast með færslum vina notenda að minnsta kosti þangað til í sumar þrátt fyrir að stjórnendur Facebook hefðu áður sagt opinberlega að slíkur aðgangur væri ekki lengur í boði.

Apple er einnig sagt hafa fengið leyfi frá Facebook til að fela fyrir notendum samfélagsmiðlisins að snjalltæki fyrirtækisins söfnuðu upplýsingum. Tækin fengu einnig aðgang að símaskrám og dagatölum fólks sem hafði sérstaklega breytt stillingum til að koma í veg fyrir deilingu þeirra upplýsinga.

Talsmaður Apple segir fyrirtækið ekki hafa vitað af því og að engin gögn hafi farið af tækjunum. Þau væru aðeins aðgengileg notendunum sjálfum.

Eiga í vök að verjast vegna persónuverndar og gagnaleyndar

Um 150 fyrirtæki eru sögð hafa fengið þessa vildarþjónustu hjá Facebook, flest þeirra tæknifyrirtæki. Óskuðu þau eftir persónuupplýsingum um hundruð milljóna notenda samfélagsmiðilsins.

Stjórnendur Facebook hafa háð varnarbaráttu undanfarna mánuði og ár í skugga gagnrýni á hvernig þeir hafa umgengist persónuupplýsingar notenda. Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook og forstjóri, sagði bandarískum þingmönnum í apríl að notendur hefðu „fulla stjórn“ á öllu sem þeir deildu á miðlinum.

Steve Satterfield, framkvæmdastjóri persónuverndar og stefnumótunar Facebook, segir að samningarnir við tæknirisana brjóti hvorki gegn friðhelgi einkalífs notenda síðunnar né gegn reglum Viðskiptastofnunar Bandaríkjanna sem kveða á um upplýst leyfi neytenda fyrir notkun persónuupplýsinga. Fyrirtækið hafi engar upplýsingar um að viðskiptavinir þess hafi misnotað upplýsingarnar.

Fullyrðir Satterfield að samstarfsfyrirtækin hafi ekki leyfi til að hunsa persónuverndarstillingar notenda Facebook. Notendur hafi ekki þurft að veita heimild fyrir því að upplýsingunum væri deilt með fyrirtækjunum vegna þess að Facebook skilgreindi þau sem þjónustuaðila sem væru í reynd framlenging á samfélagsmiðlinum sjálfum.

Samstarf Facebook við tæknifyrirtæki eins og Spotify gerðu notendum kleift að hafa samskipti sín á milli þvert á miðla. Það þýddi hins vegar að þessi utanaðkomandi fyrirtæki fengju persónuupplýsingar um hundruð milljóna notenda með í kaupunum.Vísir/EPA

Segjast ekki hafa vitað af heimildum sínum

Facebook fékk einnig upplýsingar frá samstarfsfyrirtækjum sínum eins og Amazon, Yahoo og Huawei til þess að knýja tól sem nefnist „Fólk sem þú gætir þekkt“. Það stingur upp á fólki sem Facebook-notandi gæti viljað bæta við sem vinum á miðlinum.

Sagt hefur verið frá tilfellum þar sem tólið stakk upp á að fólk sem gekk til sama sálfræðings gerðust vinir, ættingjar sem höfðu sagt skilið hver við annan og jafnvel eltihrellar og fórnarlömb þeirra.

Sum samstarfsfyrirtækjanna segjast hafa verið grunlaus um hvers konar aðgang þau höfðu að upplýsingum Facebook-notenda. Þannig segir New York Times að Spotify, Netflix og Royal Bank of Canada hafi fengið heimild til að lesa, skrifa og eyða einkaskilaboðum Facebook-notenda. Talsmenn Spotify og Netflix sögðu fyrirtækin ekki hafa vitað af þeim aðgangi en talsmaður bankans þrætti fyrir að slík heimild hafi verið veitt.


Tengdar fréttir

Facebook enn og aftur á hælunum

Forsvarsmenn Facebook segjast ekki hafa reynt að afvegaleiða almenning í tengslum við áróðursherferð Rússa á samfélagsmiðli fyrirtækisins í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×