Viðskipti erlent

Face­book sagt hafa grafið undan gagn­rýn­endum með því að tengja þá við Sor­os

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mark Zuckerberg er stofnandi og forstjóri Facebook.
Mark Zuckerberg er stofnandi og forstjóri Facebook. vísir/getty
Facebook réð almannatengslafyrirtæki til þess að reyna að grafa undan gagnrýnendum samfélagsmiðlarisans með því að tengja gagnrýnendurna við milljarðamæringinn George Soros. Voru gagnrýnendurnir sagðir vera sérstakir útsendarar Soros.

Fjallað er um málið á vef Guardian og vísað í ítarlega úttekt New York Times um hvernig Facebook hefur tekist á við vandamálin sem blasað hafa við fyrirtækinu undanfarin misseri.

Soros er fjárfestir og gyðingur. Hann hefur löngum orðið verið hluti af ýmsum andgyðinglegum samsæriskenningum en á sama tíma og Facebook var að reyna að grafa undan gagnrýnendum með að tengja þá við Soros var miðillinn að berjast gegn andgyðinglegum áróðri sem birtist á Facebook.

Spjótin fóru ekki hvað síst að beinast að Facebook vegna áhrifa Rússa á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 2016 þar sem auglýsingar á samfélagsmiðlinum voru nýttar.

Dreifðu neikvæðum greinum um Apple og Google

Facebook leitaði til ráðgjafafyrirtækisins Definers Public Affairs vegna þeirrar gagnrýni sem beindist að miðlinum í tengslum við Rússa og forsetakosningarnar. Ein aðferðin sem Definers Public Affairs beitti var að birta tugi neikvæðra greina um önnur tæknifyrirtæki á borð við Google og Apple.

Önnur aðferð var svo að setja Soros í hlutverk þess sem var í forsvari fyrir ófræginarherferð gegn Facebook.

Definers Puclic Affairs kom þannig skjali í umferð sem tengdi Soros við umfangsmikla ófræginarherferð gegn samfélagsmiðlinum og hvatti blaðamenn til þess að kanna fjárhagsleg tengsl á milli Soros og hópa á borð við Freedom from Facebook og Color of Change.

 

Soros hefur, eins og áður segir, gjarnan orðið fyrir barðinu á samsæriskenningum.

Samsæriskenningarnar náðu einhvers konar hámarki í vikunum fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum í byrjun mánaðarins þegar því var ranglega haldið fram að Soros stæði á bak við fjölda innflytjenda frá Mið-Ameríku sem væru að reyna að komast inn til Bandaríkjanna yfir landamærin í Mexíkó.


Tengdar fréttir

Þetta er það sem Google og Facebook vita um þig

Þar til fyrir um viku taldi ég mig nokkuð vel upplýsta um það hversu miklum upplýsingum Facebook og Google væru að safna og hefðu um mig. Svo las ég greinina Are You Ready? Here is all the data Facebook and Google have on you.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×