Handbolti

Logi grínaðist í Arnari: „Ég vissi að þetta myndi koma!“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Strákarnir ræða málin á mánudagskvöldið.
Strákarnir ræða málin á mánudagskvöldið. vísir/skjáskot
Lokaskotið var að sjálfsögðu í Seinni bylgjunni á mánudagskvöldið er síðasti þátturinn á árinu 2018 fór fram.

Í lokaskotinu er að venju farið yfir þrjú málefni en þar var meðal annars rætt um hvaða lið myndu fara alla leið í undanúrslitin í Olís-deildinni.

Þegar Tómas Þór Þórðarson beindi spjótunum að Arnari Péturssyni, sem var sérfræðingur í þættinum á mánudag, og spurði hann hvort að eitthvað lið sem væri nú ekki í efstu fjórum sætunum gæti farið alla leið var Arnar fljótur að svara.

„ÍBV,“ sagði Arnar sem stýrði Eyja-liðinu í níu ár. Logi Geirsson, hinn sérfræðingur þáttarins, var fljótur til og gantaðist aðeins í Arnari en afraksturinn má sjá hér að neðan eins og allt lokaskotið.



Klippa: Seinni bylgjan: Lokaskotið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×