Vonaði að íslensku strákarnir myndu sparka Hazard niður Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. september 2018 08:30 vísir/getty
Aron Einar Gunnarsson og liðsfélagar hans í Cardiff undirbúa sig nú fyrir stórleik á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Aron Einar er þó enn frá vegna meiðsla. Cardiff er enn án sigurs eftir fjóra leiki en búið að gera tvö jafntefli. Chelsea fer frábærlega af stað undir stjórn Maurizio Sarri og er búið að vinna alla fjóra leiki sína til þessa. Warnock veit að Chelsea-liðið er frábært en það eru tveir leikmenn sem að hann hefur sérstaklega miklar áhyggjur af; Eden Hazard og Willian. „Ég var að vonast eftir því að Barcelona myndi kaupa Willian í sumar og Hazard færi til Real Madrid. Þeir eru svo ótrúlega góðir,“ segir Warnock í viðtali við Evening Standard. Eden Hazard er í frábæru formi þessa dagana en hann fer varla inn á fótboltavöllinn án þess að skora eða leggja upp. Íslendingar urðu vitni að því á þriðjudaginn en Hazard skoraði þá úr víti fyrir Belgíu í 3-0 sigri bronsliðs HM á Laugardalsvellinum. „Menn reyna að sparka hann niður en hann elskar það. Hann vill bara spila. Ég elska viðhorf hans til fótboltans. Ég skil vel hvers vegna Chelsea lét hann ekki fara því hann er svo stór hluti af því sem að liðið er að reyna að gera,“ segir Warnock og slær svo á létta strengi eins og alltaf: „Hvernig á maður að stöðva Hazard? Það má Guð vita. Ég var að vonast eftir því að íslensku leikmennirnir myndu sparka hann niður þegar að hann spilaði fyrir Belgíu í vikunni. En í alvöru talað verður það ekki uppleggið okkar,“ segir Neil Warnock.
Enski boltinn Mest lesið FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira