Markvörður Watford vorkennir Petr Cech Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. september 2018 11:00 Petr Cech. Vísir/Getty
Það eru breyttir tímar hjá Arsenal liðinu eftir að Unai Emery tók við af Arsene Wenger sem knattspyrnustjóri. Fátt hefur hins vegar breyst eins mikið og lífið hjá markverðinum Petr Cech. Svo erfitt hefur verið fyrir Petr Cech að aðlagast nýjum leikstíl Arsenal liðsins að einn kollegi hans í ensku úrvalsdeildinni segist hreinlega vorkenna tékkneska markverðinum. Unai Emery vill að Petr Cech spili boltanum á varnarmenn sína við hvert tækifæri en það hefur oft reynst honum mjög erfitt.Ben Foster has backed Petr Cech and says he "feels sorry" for the Arsenal goalkeeper after recent errors https://t.co/NBsKgicOeGpic.twitter.com/6K4zgcRiEP — BBC Sport (@BBCSport) September 3, 2018Petr Cech hefur nefnilega gert mörg mistök í fyrstu leikjunum og oftar en ekki sent boltann á mótherja sem eru staddir við vítateiginn og um leið komnir í úrvalsfæri. Ein sending Cech á móti Manchester City endaði líka næstum því í hans eigin marki. „Cech er einn af bestu markvörðunum í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en þetta er ekki hans leikur,“ sagði Ben Foster, markvörður Watford, í viðtali við BBC Radio 5 live. Ben Foster og félagar í Watford hafa unnið fjóra fyrstu leiki sína í ensku úrvalsdeildinni og er með fullt hús eins og Liverpool og Chelsea. „Allan sinn feril hefur hann spilað ákveðinn fótbolta og núna á lokakafla ferilsins þá þarf hann allt í einu að breyta sínum stíl. Hans styrkleiki hefur alltaf verið að verja boltann en nú er þróun fótboltans þannig að allir markverðir verða að breyta sér í svona Ederson-týpu,“ sagði Ben Foster. „Fyrir marga markemnn þá er þetta allt annað en auðvelt. Það mun taka Cech tíma að venjast þessu og ég vorkenni honum,“ sagði Ben Foster.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira