Pellegrini vildi ekki fá Yaya Toure til West Ham Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 30. ágúst 2018 22:00 Pellegrini og Toure þegar allt lék í lyndi Getty
Fíaskóið með Yaya Toure heldur áfram, þrátt fyrir að hann sé á leið til Olympiakos í Grikklandi. Umboðsmaður hans gaf til kynna að hann væri alls ekki á leið til West Ham eftir að hafa farið í læknisskoðun í London. Nú hefur stjóri West Ham, Manuel Pellegrini sagt að hann hafi sjálfur neitað því að fá Toure til liðs við félagið í sumar. Yaya Toure er samningslaus en hann virðist nú á leið til Grikklands. Fílabeinsstrendingurinn fór í læknisskoðun í London í vikunni og fóru upp miklar vangaveltur, um hvaða félag hann væri að ganga til liðs við. Margir héldu að hann væri á leið til West Ham og spila þar undir stjórn Pellegrini en þeir unnu saman hjá Manchester City og urðu Englandsmeistarar tímabilið 2013-14 Það var hins vegar skotið niður snarlega þegar umboðsmaður Toure, Dimitry Seluk sagði á Twitter að Toure væri meistari, síðasta sætið væri ekki staður fyrir hann.It's not West Ham, 100%. Yaya is a champion. The last place is not for himhttps://t.co/eDGeI0EvFf — Dimitry Seluk (@dmitriseluk) August 28, 2018 Nú hefur Pellegrini gefið það út að hann hafi talað við Toure og að Fílabeinsstrendingurinn hafi viljað vera áfram í ensku úrvalsdeildinni. „Því miður eru þetta orð umboðsmanns Toure,“ sagði Pellegrini. „Ég talaði við Toure, ég þekki hann og kann að meta hann sem persónu. Hann er frábær leikmaður, en þegar við fórum yfir leikmannalistann okkar, voru leikmenn nú þegar í okkar röðum sem leika í hans stöðum. Ég vona að hann finni gott félag, stórt félag, því hann er frábær leikmaður.“ Toure virðist nú vera á leið til Olympiakos en þar lék hann tímabilið 2005-06.
Enski boltinn Mest lesið Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Austurríkismenn hjálpuðu Alfreð Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Fótbolti Fleiri fréttir Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Sjá meira