Hent út úr ensku bikarkeppninni vegna smáskuldar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2018 09:30 Enski bikarinn í höndum Malcolm Clements hjá Yaxley FC. Myndin tengist fréttinni þó ekki beint. Mynd/Twitter/@FA
Enska utandeildarfélagið Litherland Remyca var ekki slegið út úr enska bikarnum heldur ákvað enska knattspyrnusambandið að vísa félaginu úr keppni. Litherland Remyca er frá Merseyside-svæðinu eins og Liverpool og Everton og hafði unnið 4-2 sigur á Charnock Richard í forkeppni bikarsins. Liðið notaði hins vegar óafvitandi ólöglegan leikmann í leiknum, því einn leikmanna Litherland Remyca átti að vera í banni í þessum leik. Bannið var þó ekki vegna gulra eða rauðra spjalda heldur fyrir að greiða ekki smásekt hjá sínum gamla félagi. Umræddur leikmaður skuldaði heil tíu pund, tæpar 1400 íslenskar krónur, hjá sínu fyrra félagi. Forráðamenn Litherland Remyca vissu aftur á móti ekki af þessu og þetta leyndarmál leikmannsins kostar félagið á endanum sæti í bikarnum.A “massive blow”. Imagine being thrown out of the FA Cup over an unpaid £10 fine… Readhttps://t.co/qhaYfxoYH9pic.twitter.com/AEpy6jduT9 — BBC Sport (@BBCSport) August 29, 2018„Þetta er mikið áfall á mörgum sviðum fyrir okkar félag,“ segir í fréttatilkynningu frá Litherland Remyca sem BBC segir frá. „Refsingin er stór og mikil fyrir okkar litla félag en við verðum að hrista þetta af okkur, læra af reynslunni og koma sterkari til baka,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Charnock Richard er því áfram inn í enska bikarnum og mætir Leek Town í næstu umferð sem fer fram 4. september næstkomandi. Litherland Remyca getur nú einbeitt sér að því að gera góða hluti í North West Counties deildinni en draumurinn um að komast alla leið í aðalkeppni enska bikarsins er dáinn.
Enski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira