Hazard ætlar að klára tímabilið með Chelsea Arnar Geir Halldórsson skrifar 19. ágúst 2018 11:00
Eden Hazard er ekki á förum frá Chelsea í bráð en hann staðfesti þetta í samtali við blaðamenn eftir 3-2 sigur Chelsea á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Fyrr í sumar gaf Hazard í skyn að hann vildi fara frá Chelsea og var talið líklegt að Evrópumeistarar Real Madrid myndu leggja allt kapp í sölurnar við að ná Belganum frá Lundúnum. Hafa enskir og spænskir fjölmiðlar skrifað um það á undanförnum dögum að Real Madrid sé enn að eltast við Hazard þar sem enn eru tólf dagar eftir af félagaskiptaglugganum á Spáni. Hazard útilokar hins vegar að yfirgefa Chelsea þó hann sé ekki tilbúinn að ræða nýjan samning við félagið en hann á tvö ár eftir af núgildandi samningi sínum. „Þið vitið hvað ég sagði eftir HM en ég er ánægður hér og vil ekki um það núna. Það hefur ýmislegt verið skrifað um mína framtíð, sumt er bull,“ segir Hazard. „Eins og staðan er núna er ég ánægður. Ég á tvö ár eftir af samningi og við sjáum til hvað gerist en ég mun ekki yfirgefa Chelsea í sumar.“ „Félagaskiptaglugginn á Englandi er lokaður. Við getum selt en getum ekki keypt leikmenn. Það væri skrýtið af Chelsea að láta mig fara án þess að geta fengið leikmann í staðinn. Það sást gegn Arsenal að stuðningsmennirnir meta mig mikils. Mér líður vel hér og svo sjáum við til hvað gerist eftir eitt eða tvö ár,“ segir Hazard.'You know, London is Blue!' @hazardeden10 #CHEARS pic.twitter.com/Md7F4cp4mi— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 18, 2018
Enski boltinn Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Sjá meira