Segir umræðuna um skipan dómara of tilfinningaknúna Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 18. febrúar 2018 20:00
Héraðsdómari og lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík segir það vera áhyggjuefni að traust á dómstólum mælist lágt hér á landi í norrænum samanburði. Þá hafi umræðan um skipan dómara við Landsrétt verið allt of tilfinningaknúin og það sé ekki til þess fallið að auka traust á dómstólum. Ásýnd íslenskra dómstóla var yfirskrift hátíðarmálþings Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, sem fram fór síðastliðinn mánudag. Þar fjallaði Arnar Þór Jónsson, héraðsdómari og lektor við lagadeild HR um traust í garð dómstóla. Að því er fram kom í máli Arnars mælist traust á dómstólum hér á landi talsvert lakara en í löndunum sem við gjarnan viljum bera okkur saman við.Arnar Þór Jónsson, héraðsdómari og lektor við lagadeild HRVísir/Sigurjón„Það er athyglisvert að þetta lága traust sem við höfum í þessum samanburði virðist lítið þokast upp á við og við stöndum mun nær hinum engilsaxnesku þjónum í þessu tilliti því miður,“ segir Arnar í samtali við Stöð 2. Hann segir skýringarnar eflaust vera margþættar en hann spyr sig meðal annars hvort það geti verið að íslenskir dómstólar séu að einhverju leyti öðruvísi en norrænir dómstólar. „Ég hef svarað því játandi. Í samanburði við Danmörku, eru íslenskir dómstólar mun pólitískari heldur en hinir dönsku.“ Það geti stafað af ýmsum ástæðum en til að mynda kunni að vera að löggjöf hér á landi sé einfaldlega óvandaðari en í öðrum norrænum ríkjum.Ákvörðun dómsmálaráðherra ætti ekki að koma á óvart „Þarf ekki að vera óvænt þó að ráðherrar vilji bara hafa áhrif á það hverjir sitja í dómstólunum. Það er kannski leiðinlegt að segja þetta en þetta er engu að síður held ég bara raunveruleiki sem við gætum bara þurft að horfast í augu við,“ segir Arnar. Við skipan dómara við Landsrétt vék dómsmálaráðherra frá tillögu dómsnefndar og skipaði fjóra dómara sem ekki voru á lista dómnefndar líkt og þekkt er orðið. Að sögn Arnars ætti það þó ekki endilega að koma á óvart enda sé skýr heimild fyrir því í lögum að víkja frá tillögum dómnefndar samþykki Alþingi tillögu ráðherra. Þótt umræða um mál þessi séu af hinu góða að mati Arnars telur hann umræðuna aftur á móti hafa verið nokkuð óvarfærna. „Í þessum efnum eins og öðrum þá verðum við að reyna að horfa á hlutina án misskilnings og án þess að vera með ýkjur og án þess að vera of mikið að blanda of mikið af tilfinningum inn í þetta. Við þurfum að geta horft á þetta út frá skynsemi og yfirvegaðri dómgreind,“ segir Arnar. Umræðan um skipan dómara við Landsrétt hafi aftur á móti ekki borið þess merki.
Tengdar fréttir Krefst þess að Arnfríður víki sæti í Landsrétti vegna vanhæfis Telur að dómur Hæstaréttar leiði til þess að dómar Arnfríðar Einarsdóttur verði ómerkti. 4. febrúar 2018 20:03 Gera hlé á Landsréttarmálinu Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundaði um málið í hádeginu. 6. febrúar 2018 13:53 Ólík sjónarmið um heimild ráðherra til að breyta tillögu hæfisnefndar Dómsmálaráðherra segir lög ekki gera ráð fyrir að hæfisnefnd hafi úrskurðarvald um hverjir skuli skipaðir í embætti dómara. Geri ráðherra breytingar á tillögu hæfisnefndar sé að Alþingis að ljúka skipun í dómaraembætti. 31. janúar 2018 19:30 Umboðsmanni Alþingis gefið rými til rannsóknar á ráðherra Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur frestað rannsókn sinni á embættisfærslum Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra. Veita með því umboðsmanni Alþingis svigrúm til að taka málið til athugunar. 7. febrúar 2018 06:00 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira
Krefst þess að Arnfríður víki sæti í Landsrétti vegna vanhæfis Telur að dómur Hæstaréttar leiði til þess að dómar Arnfríðar Einarsdóttur verði ómerkti. 4. febrúar 2018 20:03
Gera hlé á Landsréttarmálinu Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundaði um málið í hádeginu. 6. febrúar 2018 13:53
Ólík sjónarmið um heimild ráðherra til að breyta tillögu hæfisnefndar Dómsmálaráðherra segir lög ekki gera ráð fyrir að hæfisnefnd hafi úrskurðarvald um hverjir skuli skipaðir í embætti dómara. Geri ráðherra breytingar á tillögu hæfisnefndar sé að Alþingis að ljúka skipun í dómaraembætti. 31. janúar 2018 19:30
Umboðsmanni Alþingis gefið rými til rannsóknar á ráðherra Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur frestað rannsókn sinni á embættisfærslum Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra. Veita með því umboðsmanni Alþingis svigrúm til að taka málið til athugunar. 7. febrúar 2018 06:00