Neymar: Ronaldo á eftir að breyta ítalska boltanum Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. júlí 2018 22:15 Cristiano Ronaldo flaug til Kína eftir að hann var kynntur til leiks hjá Juventus. vísir/getty
Brasilíumaðurinn Neymar telur að Cristiano Ronaldo eigi eftir að breyta landslaginu í ítalska boltanum eftir að hann var keyptur til Juventus frá Real Madrid fyrir 105 milljónir punda. Ronaldo er orðinn 33 ára gamall en virðist hvergi slá slöku við. Hann vann Meistaradeildina í fjórða sinn með Real Madrid í vor og var kjörinn besti fótboltamaður heims í fimmta sinn í byrjun árs. Ítalska deildin var sú besta framan af á tíunda áratug síðustu aldar en varð aðeins eftir á upp úr aldamótum. Hún er á réttri leið og Neymar telur hana vera í góðum málum með portúgalska snillinginn innanborðs. „Ronaldo á eftir að breyta ítalska boltanum. Deildin verður aftur eins og þegar ég var að horfa sem barn því Cristiano Ronaldo er frábær leikmaður. Hann er goðsögn í fótboltaheiminum. Algjör snillingur,“ sagði Neymar. Neymar fór um víðan völl er hann svaraði spurningum blaðamanna á góðgerðarkvöldi sem hann hélt í gær en margar spurningarnar voru um Ronaldo sem yfirgaf Real Madrid eftir farsæla níu ára dvöl í spænsku höfuðborginni. „Ég er svo ánægður fyrir hans hönd með þessa ákvörðun. Þetta hefur verið erfið ákvörðun en ég óska honum alls hins besta, bara ekki á móti PSG,“ sagði Neymar.
Ítalski boltinn Mest lesið Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Enski boltinn „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Enski boltinn Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Fótbolti Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Fleiri fréttir Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Sjá meira