Slagsmálapabbinn sendur í fangelsi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2018 17:00 Það gekk ýmislegt á. Vísir/Getty
Hann hneykslaði marga með því að blanda sér í slagsmál á fótboltaleik með barn undir hendinni og í dag varð það endanlega ljós að þessi allt annað en fyrirmyndarpabbi er á leiðinni í tukthúsið. Stuðningsmaður Everton, sem í október reyndi að lemja leikmenn Lyon með barn undir hendinni, kom fram fyrir dómara í dag og fékk enga miskunn. Hann er því á leiðinni í fangelsi vegna hegðunar sinnar.Everton fan jailed for attacking Lyon player while holding toddler https://t.co/nLVsQSvBji — The Guardian (@guardian) June 1, 2018 Michael Fitzpatrick hélt á þriggja ára syni sínum þegar hann reyndi að grípa í og slá til leikmanna Lyon eftir að leikmönnum Everton og Lyon lenti saman við endalínuna í leik liðanna í Evrópudeildinni í vetur. Dómari dæmdi þennan þrítuga slagsmálapabba í átta vikna fangelsi og þessi stórfurðulega framkoma hans þetta kvöld tryggir það að hann er hér eftir á sakaskrá. Fitzpatrick má heldur ekki mæta á fótboltaleiki næstu sex árin. Framkoma Fitzpatrick sást vel í upptökum frá látunum en hann kom fram opinberlega eftir atvikið og sagðist skammast sín mjög mikið. Hann óttaðist einnig um að missa umgengisrétt við börnin sín. Upphafið á látunum var þegar Everton maðurinn Ashley Williams ýtti Anthony Lopes, markverði Lyon. Það varð til þess að nokkrum leikmönnum liðanna lenti saman og hópurinn endaði upp við stúkuna þar sem slagsmálapabbinn vildi blanda sér í málið. Hér fyrir neðan má sjá þessi átök.
Enski boltinn Mest lesið Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Íslenski boltinn FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Afsalar sér óvænt öllum heimsmeistaratitlum Sport Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Brakandi fersk tíðindi og er rígurinn dauður? Sport AC Milan kaupir Ramos fyrir metfé Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Fleiri fréttir Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Sjá meira