Erlent

Vatnsgos á Evrópu vekur vonir um líf undir ísnum

Kjartan Kjartansson skrifar
Undir ísilögðu yfirborði Evrópu leynist að líkindum neðanjarðarhaf fljótandi vatns.
Undir ísilögðu yfirborði Evrópu leynist að líkindum neðanjarðarhaf fljótandi vatns. NASA/JPL-Caltech/SETI Institute
Vísbendingar um strók úr vatnsgufu sem stóð upp af yfirborði Evrópu, tungli Júpíters, kom í ljós við greiningu á gögnum frá Galíleó, geimfari bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA. Strókurinn er vísbending um að fljótandi vatn gæti leynst undir yfirborði tunglsins og vekur vonir um að þar gæti líf verið að finna.

Evrópa er minnst Galíleótunglanna svonefndu sem ganga um gasrisann Júpíter. Tuga kílómetra þykk ísskorpa myndar sprungið yfirborð Evrópu en vísindamenn hafa lengi leitt að því líkum að undir henni sé víðáttumikið haf fljótandi vatns.

Vísindamenn sem fóru aftur yfir gögn frá Galíleó, geimfari NASA, frá því að það flaug fram hjá Evrópu í desember árið 1997 telja að strókur vatnsgufu sem gaus upp um sprungu í ísskorpunni og náði hundruð kílómetra upp í geiminn skýri óvenjulegar mælingar þess.

„Það voru nokkrir afbrigðilegir hlutir í þessu nærflugi í desember árið 1997 sem við skildum aldrei fyllilega,“ segir Margaret Kivelson, vísindamaður við Galíleóleiðangurinn við breska blaðið The Guardian.

Við nánari skoðun hafi mælingarnar verið í samræmi við það sem menn byggðust við ef geimfarið flygi í gegnum vatnsgufustrók. Strókarnir eru taldir besta leiðin fyrir vísindamenn að kanna mögulegan lífvænleika Evrópu.

Enkeladus spýr strókum vatnsgufu og íss blönduðum lífrænum efnum út í geiminn. Strókarnir eru vísbending um mikið neðanjarðarhaf undir yfirborðinu.NASA/JPL-Caltech/Univ. Arizona/Univ. Idaho

Líf gæti kviknað við neðansjávarstrýtur

Uppgötvun vísindamanna á örverulífi í kringum jarðhitastrýtur á hafsbotni á jörðinni vöktum með þeim von í brjósti að slíkt líf gæti hafa kviknað á öðrum hnöttum í sólkerfinu. Leyni líf á Evrópu væri það í kringum sambærilegar strýtur þar sem sólarljóss nýtur ekki við í neðanjarðarhafi tunglsins.

Tveir könnunarleiðangrar eru fyrirhugaðir til Evrópu á næsta áratuginum, bandaríski Europa Clipper-leiðangurinn og evrópski Juice-leiðangurinn. Geimförin gætu reynt að gera beinar mælingar á strókunum til að varpa frekari ljósi á innviði Evrópu.

Evrópa er ekki eina ístunglið í sólkerfinu þar sem stjörnufræðingar telja að neðanjarðarhaf kunni vera að finna.

Cassini-geimfarið sem gekk um Satúrnus í tólf ár náði myndum af strókum vatnsgufu sem teygðu sig upp frá yfirborði Enkeladusar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×