Eiga fyrir launum Neymars í 16 daga en mæta PSG í úrslitum bikarsins Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. maí 2018 19:00 Neymar fær vel greitt fyrir sín störf. Vísir/Getty
Í kvöld mæta Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain liðinu Les Herbiers í bikarúrslitum í Frakklandi. Veistu ekki hvaða lið Les Herbiers er? Skiljanlega. Þetta er lið sem er í fallbaráttunni í C-deildinni í Frakklandi en það komst upp í C-deildina í fyrsta sinn í sögu félagsins fyrir þremur árum. BBC greinir frá. Les Herbiers á einn leik eftir í deildarkeppninni og getur fallið í lokaumferðinni en fari svo að liðið endi í D-deildinni verður það með varaliði PSG í deild á næsta tímabili. Heildarkostnaður við rekstur á liði Les Herbiers á ári eru tvær milljónir evra en það myndi duga fyrir launum brasilísku ofurstjörnunnar Neymars hjá PSG í heila 16 daga. Eftir það þyrftu Herbiers-menn að fara að selja ansi mikið af harðfisk. PSG er rekið á 540 milljónum evra á ári en liðið hefur unnið 27 titla í sögunni. Les Herbiers hefur aldrei unnið titil og eytt 98 árum fyrir neðan B-deildina á meðan PSG hefur aðeins einu sinni í sögunni verið fyrir neðan B-deildina. Það er ekkert nýtt að smálið komist í úrslit bikarsins eða deildabikarsins í Frakklandi. Les Herbiers er fimmta liðið úr C eða D-deild sem kemst í úrslitaleikinn og það ætla allir í bænum að mæta. Í bænum búa 15.933 og er búið að selja 15.000 miða. Síðastur út slekkur svo ljósin.
Fótbolti Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira