Formúla 1

Upphitun: Öll pressan komin á Hamilton

Bragi Þórðarson skrifar
Lewis Hamilton í brautinni í Kína.
Lewis Hamilton í brautinni í Kína. Vísir/Getty
Sebastian Vettel hjá Ferrari hefur nú unnið fyrstu tvær keppnirnar í Formúlu 1 er mótaröðin fer yfir til Kína frá eyðimörkinni í Barein. Það þarf að fara aftur til ársins 1982 til að finna ökumann sem varð ekki heimsmeistari eftir að hafa unnið fyrstu tvær keppnir ársins. „Það voru mun færri keppnir á þeim tíma,“ sagði Vettel brosandi er hann var spurður út í þessa staðreynd efir síðustu keppni.

Með þessum árangri er Ferrari-ökuþórinn nú þegar kominn með 17 stiga forskot á aðalkeppinaut sinn, ríkjandi heimsmeistarann Lewis Hamilton hjá Mercedes. Því er öll pressan á Hamilton um helgina en Mercedes liðið hefur yfirleitt staðið sig mjög vel á Sjanghæ-brautinni í Kína.

Hamilton á einnig flesta sigra á brautinni sem var tekin í notkun árið 2004. Brautin er tæknilega krefjandi fyrir ökumenn og fyrsta beygjan er ein sú erfiðasta í mótinu - löng hægri beygja sem kreppist meira og meira.

Þó að Ferrari hafi haft betur gegn Mercedes í fyrstu tveimur keppnum ársins er ljóst að hraði þessara liða er áþekkur. Búist var við því fyrir tímabilið að Red Bull myndu vera í þessum slag og á liðið enn möguleika á því þrátt fyrir hræðilega byrjun á tímabilinu.

Eins og alltaf í þessari íþrótt er nær ómögulegt að spá fyrir um hvernig baráttan um miðjan pakkan verður. Þar hafa Haas, Renault og McLaren verið þau lið sem eru hvað líklegust til að ná árangri en frábær úrslit Toro Rosso í Barein gætu þýtt að ítalska liðið er komið til að vera í þessum slag.

Hvað gerðist í fyrra?
Sebastian Vettel.Vísir/Getty
Kínverski kappaksturinn í fyrra var gríðarlega skemmtilegur í erfiðum aðstæðum. Lewis Hamilton náði sínum fimmta sigri á brautinni og Vettel varð annar. Max Verstappen sýndi hæfileika sýna í rigningu með frábærum akstri frá 16. sæti upp í það þriðja fyrir Red Bull. Helgin var þó ekki jafn góð fyrir Sauber liðið þar sem Antonio Giovinazzi klessti tvívegis á sama steypuvegginn á ráskaflanum.

Það má þó ekki búast við rigningu í kappakstrinum um helgina þó að það gætu komið nokkrir dropar í tímatökum á laugardaginn.

Á æfingum fyrir Sjanghæ kappaksturinn er það Mercedes sem hafa haft yfirhöndina gegn Ferrari en það munar þó bara einum tíunda úr sekúndu á liðunum. Red Bull náði góðum árangri á þessum fyrstu æfingum og gæti vel verið að ökumenn liðsins, Daniel Ricciardo og Max Verstappen munu blanda sér í slaginn um fyrsta sætið.

Keppnin verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport um helgina og hefst útsending á kappakstrinum kl. 05:40 á sunnudag. Bein útsending frá tímatökunni hefst klukkan 05.50 í fyrramálið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×