Golf

Ástrali og Englendingur spila með Tiger fyrstu tvo dagana á Mastersmótinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods.
Tiger Woods. Vísir/Getty
Nú er ljóst hverjir spila saman á fyrstu tveimur dögum Mastersmótsins í golfi sem hefst á fimmtudaginn kemur en þetta er fyrsta risamót ársins 2018.

Allra augu verða á Bandaríkjamanninum Tiger Woods sem hefur komið sterkur til baka eftir síðustu bakaðgerð og spilað mjög vel á síðustu mótum. Það eru Ástralinn Marc Leishman og Englendingurinn Tommy Fleetwood sem verða í ráshópi með Tiger.





Marc Leishman er 34 ára gamall en hefur ekki náða að vinna risamót. Besti árangur hans er 2. sæti á opna breska meistaramótinu árið 2015 en besti árangur hans á Mastersmótinu er 4. sætið árið 2013.

Tommy Fleetwood er 27 ára gamall og náði ekki niðurskurðinum á Mastersmótinu í fyrra. Hans besti árangur á risamóti er 4. sæti á opna bandaríska meistaramótinu árið 2017.

Tiger Woods hefur unnið fjórtán risamót á ferlinum þar af Mastersmótið fjórum sinnum eða 1997, 2001, 2002 og 2005. Hann vann hinsvegar sitt síðasta risamót fyrir tíu árum eða opna bandaríska mótið árið 2008.





Spánverjinn Sergio Garcia vann Mastersmótið í fyrra og hann er í ráshópi með þeim Justin Thomas og áhugamanninum Doc Redman. Þeir fara út strax á eftir ráshóp Tiger.

Eitt flottasti hópurinn er sá með þeim Bubba Watson, Henrik Stenson og Jason Day en Jordan Spieth er í hópi með þeim Alex Noren og Louis Oosthuizen og þá verður Rory McIlroy með þeim Adam Scott og Jon Rahm.

Phil Mickelson er í ráshópi með þeim Rickie Fowler og Matt Kuchar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×