Bíða dauðans í stanslausu sprengjuregni Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 22. febrúar 2018 08:00 Almennir borgarar í Hamouria í Austur-Ghouta björguðu barni úr húsarústum eftir loftárás sveita hliðhollra Bashar al-Assad Sýrlandsforseta. Vísir/afp
Sýrland „Við erum bara að bíða eftir því að það sé komið að okkur að deyja. Meira hef ég ekki að segja,“ sagði Bilal Abu Salah við Reuters í gær. Salah er íbúi í Douma, stærsta bæ Austur-Ghouta í Sýrlandi þar sem sprengjum hefur rignt linnulaust yfir borgara undanfarna daga. Hann er 22 ára gamall og á von á sínu fyrsta barni með eiginkonu sinni sem er komin fimm mánuði á leið. Að minnsta kosti 45 fórust og rúmlega 200 særðust í árásum fylgismanna Bashars al-Assad, forseta Sýrlands, í Austur-Ghouta í gær. Þýðir það að frá því á sunnudag, þegar Assad-liðar settu aukinn þunga í sókn sína, hafa rúmlega 300 farist. Austur-Ghouta er síðasta stóra vígi uppreisnarmanna nærri höfuðborginni Damaskus. Svæðið er umkringt landsvæðum sem stjórnarherinn og bandamenn hans stýra og eru nærri 400.000 almennir borgarar innlyksa í Austur-Ghouta þar sem hjálparsamtök segja að matur, eldsneyti og lyf séu af skornum skammti.Sjá einnig: Óttast að Austur-Ghouta sé hið nýja Aleppo Þótt svæðið eigi að heita átakalaust, samkvæmt samkomulagi stríðandi fylkinga, herja Assad-liðar enn á uppreisnarmenn þar sem ekkert samkomulag nær til öfgasamtaka. Í Austur-Ghouta fyrirfinnast meðlimir samtakanna Tahrir al-Sham, bandalags öfgamanna undir forystu fyrrverandi bandamanna al-Kaída í Sýrlandi. Uppreisnarmenn hafa sakað stjórnarherinn og bandamenn um að nota það sem afsökun fyrir stanslausum árásum. Fyrrnefndur Bilal Abu Salah sagði aukinheldur við Reuters í gær að nú byggju flestir íbúar í neyðarskýlum þar sem afar þröngt væri um fólk. Engan mat væri að fá og allir markaðir væru lokaðir. Þar að auki óttast þessi ungu hjón mjög að átökin valdi því að barnið fæðist löngu fyrir tímann. Læknir sem vinnur á átakasvæðinu sagði frá því í viðtali við BBC í gær að ástandið væri orðið hamfarakennt og sagðist líta svo á að alþjóðasamfélagið hafi yfirgefið íbúa Austur-Ghouta. „Við höfum ekkert. Engan mat, engin lyf, ekkert húsaskjól. Við höfum ekki einu sinni brauð. Við höfum ekkert,“ sagði læknirinn sem kom einungis fram undir eftirnafninu Bassam. Sagði hann enn fremur að sprengja félli á tuttugu, jafnvel tíu mínútna fresti. „Þeir skjóta á allt. Búðir, markaði, sjúkrahús, skóla, moskur, allt. Jafnvel þótt ég sinni einhverjum kemur hann bara aftur næsta eða þarnæsta dag, slasaður á ný,“ sagði Bassam og bætti við: „Hvar er alþjóðasamfélagið? Hvar er öryggisráð Sameinuðu þjóðanna? Það hefur yfirgefið okkur. Það skilur okkur eftir hér til að deyja.“Sjá einnig: UNICEF orðlaus yfir blóðbaðinu í SýrlandiSameinuðu þjóðirnar hafa kallað eftir vopnahléi á svæðinu í von um að hægt verði að koma neyðaraðstoð til almennra borgara og að hægt verði að flytja alvarlega særða á brott. Hafa SÞ jafnframt fordæmt árásir á innviði á svæðinu og varað við því að slíkar árásir gætu talist stríðsglæpir. Uppreisnarmenn hafa einnig skotið úr sprengjuvörpum á hverfi Damaskusborgar, nærri Austur-Ghouta. Tveir særðust í árásum gærdagsins og þrír féllu á þriðjudag, að því er sýrlenskir ríkisfjölmiðlar greina frá. „Í dag skutu ólöglegar vopnaðar sveitir í Austur-Ghouta á íbúa, hótel og rússneskar skrifstofur í Damaskus,“ sagði í tilkynningu frá rússneska varnarmálaráðuneytinu á þriðjudag. Rússar eru bandamenn ríkisstjórnarinnar.
Birtist í Fréttablaðinu Sýrland Tengdar fréttir Óttast að Austur-Ghouta sé hið nýja Aleppo Mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights telja að hið minnsta 77 óbreyttir borgarar hafi látið lífið í Austur-Ghouta gær í loftárásum Sýrlandshers. 20. febrúar 2018 06:29 Talið að 250 manns hafi látist í loftárásum Sýrlandshers á tveimur dögum Mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights telja að allt að 250 manns hafi látist í loftárásum Sýrlandshers sem gerðar hafa verið á Austur-Ghouta í Sýrlandi síðustu tvo daga. 20. febrúar 2018 23:27 UNICEF orðlaus yfir blóðbaðinu í Sýrlandi Sprengjuárásir á Austur-Ghouta halda áfram. Mánudagurinn einn sá versti í mörg ár. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á engin orð til að lýsa hryllingnum og spyr hvort hinir seku eigi einhver orð til að réttlæta villimennskuna. 21. febrúar 2018 08:00 Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Fleiri fréttir Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Sjá meira
Óttast að Austur-Ghouta sé hið nýja Aleppo Mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights telja að hið minnsta 77 óbreyttir borgarar hafi látið lífið í Austur-Ghouta gær í loftárásum Sýrlandshers. 20. febrúar 2018 06:29
Talið að 250 manns hafi látist í loftárásum Sýrlandshers á tveimur dögum Mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights telja að allt að 250 manns hafi látist í loftárásum Sýrlandshers sem gerðar hafa verið á Austur-Ghouta í Sýrlandi síðustu tvo daga. 20. febrúar 2018 23:27
UNICEF orðlaus yfir blóðbaðinu í Sýrlandi Sprengjuárásir á Austur-Ghouta halda áfram. Mánudagurinn einn sá versti í mörg ár. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á engin orð til að lýsa hryllingnum og spyr hvort hinir seku eigi einhver orð til að réttlæta villimennskuna. 21. febrúar 2018 08:00