Svíar rúlluðu Hvít-Rússum upp Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 22. janúar 2018 20:59 Kristján á hliðarlínunni í Króatíu vísir/ernir
Lærisveinar Kristjáns Andréssonar í sænska landsliðinu í handbolta unnu öruggan sigur á Hvíta-Rússlandi í milliriðli eitt á Evrópumótinu í Króatíu. Svíar byrjuðu leikinn mun betur og voru fljótt komnir með fjögurra marka forystu, 6-2. Þá vöknuðu Hvít-Rússar aðeins til lífsins, en þó ekki meir en svo að þeir náðu mest að koma muninum niður í tvö mörk. Svíar gáfu í á lokametrum fyrri hálfleiks og fóru með fimm marka forskot í hálfleikinn, 16-11. Hvít-Rússar gerðu annað áhlaup í upphafi seinni hálfleiks, en mennirnir hans Kristjáns náðu að standa það af sér og þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik var munurinn aftur kominn í fimm mörk. Þaðan juku Svíar hægt og rólega forskotið og enduðu leikinn með níu marka sigri 29-20. Staðan í milliriðli eitt fyrir lokaumferðina er því þannig að Frakkar eru í efsta sæti með 8 stig. Þar á eftir koma Svíar og Króatar með sex stig. Í loka umferðinni mætast Frakkar og Króatar innbyrðis og Svíar mæta Norðmönnum. Efstu tvö liðin fara í undanúrslit keppninnar.
EM 2018 í handbolta Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Íslenski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður Sport Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Fleiri fréttir Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Sjá meira