Sigraðu sjálfan þig Forlagið kynnir 18. janúar 2018 12:30 Ingvar Jónsson en hann er stjórnunar- og markaðsfræðingur ásamt því að vera ICF markþjálfi. MYND/STEFÁN
KYNNING Forlagið hefur sent frá sér bókina Sigraðu sjálfan þig eftir Ingvar Jónsson en hann er stjórnunar- og markaðsfræðingur ásamt því að vera ICF markþjálfi. Bókin er þriggja vikna áskorun fyrir venjulegt fólk sem vill ná meiri árangri í lífinu. Ingvar segir að bókin sé byggð á hugmyndafræði markþjálfunar. Sjálfur hefur hann starfað sem markþjálfi undanfarin sex ár og aðstoðað fjölmarga við að ná markmiðum sínum. „Þetta er bók sem hjálpar lesandanum að finna lausnir sem henta honum best. Hún aðstoðar lesendur við leitina að svörum sem þeir hafa ekki fundið hingað til því allir eru sérfræðingur í sjálfum sér. Lesandinn byrjar á því að fara í gegnum gríðarlega víðtækt sjálfsmat,“ útskýrir Ingvar. „Það eru 110 staðhæfingar í bókinni sem lesandinn þarf að leggja mat á og taka afstöðu til,“ bætir hann við. Ingvar segir bókina ekki fjalla um rústabjörgun heldur væntingar, að ná meiri árangri í lífinu og að nýta betur eigin færni. „Hugsunin er: „Ég veit að ég á talsvert inni“. Maður þarf að greina heilsu, orkustjórnun, samskipti, tengsl við fjölskyldu og vini, áhugamál, fjármál, persónulegan þroska og vinnu. Síðan velur lesandinn það sem hann langar að vinna áfram með. Bókin hjálpar fólki að komast upp úr djúpum hjólförum vanans,“ segir Ingvar en hann hefur fengið mjög góð viðbrögð frá lesendum. „Bókin kom út eftir áramótin en hún er þriggja vikna ferðalag. Lesandinn fer í gegnum einn dag í einu, les og fræðist, vinnur verkefni og svarar spurningum sem opna augu hans fyrir hvernig vanahegðun getur haldið aftur af honum í starfi og lífinu almennt. Ég hef heyrt frá fólki sem hefur deilt með mér sigrum sínum eftir að hafa fylgt bókinni. Reynsla mín á undanförnum árum sem markþjálfi hefur kennt mér að sumir hlutir virka vel en aðrir ekki. Í bókinni nota ég það sem hefur virkað best. Ég hef til dæmis kennt stjórnendum fyrirtækja að nýta hæfnisþætti markþjálfunar til að aðlaga eigin stjórnunarstíl betur að sínu starfsfólki. Til að vera góður stjórnandi þarf maður að skilja sjálfan sig betur,“ útskýrir Ingvar. „Fyrst þarf að setja súrefnisgrímuna á sjálfan sig áður en maður aðstoðar aðra“.Bókin er byggð upp á sama hátt og markþjálfasamtal. „Ég tala við lesandann í gegnum alla bókina. Við byrjum á því að horfast í augu við staðreyndir, förum svo saman í ákveðna rannsóknarvinnu þar sem við skoðum viðkomandi innan frá. Bókinni er ætlað að hræra upp í lesandanum og vekja hann til vitundar um hvar hann stendur og hvert hann vill stefna. Hún byggir upp sjálfstraust og sjálfsvirðingu. Bókin endar síðan á því að lesandinn setur sér raunhæf markmið sem hann brennur fyrir að ná,“ útskýrir Ingvar en bókin er fáanleg í bókaverslunum.
Menning Mest lesið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Lífið Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Lífið „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Lífið Fleiri fréttir X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sjá meira