Innflæði í ríkisskuldabréf dróst verulega saman Kristinn Ingi Jónsson skrifar 14. febrúar 2018 08:00 Már Guðmundsson, seðlabankastjóri
Verulega hægðist á innflæði fjármagns vegna fjárfestinga erlendra fjárfesta í ríkisskuldabréfum á fjórða fjórðungi síðasta árs. Þannig nam innflæðið aðeins 2,4 milljörðum króna á fjórðungnum borið saman við 8,5 milljarða á þriðja fjórðungi og 7 milljarða á öðrum fjórðungi ársins, samkvæmt nýjum tölum sem Seðlabanki Íslands hefur birt. Þar af var innflæðið ekkert í október og desember. Á sama tíma jókst hins vegar innflæði frá erlendum fjárfestum verulega í skráð hlutabréf í Kauphöllinni. Þannig keyptu þeir í skráðum félögum fyrir 15,4 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs borið saman við 8 milljarða á þriðja ársfjórðungi. Innflæði fjármagns vegna fjárfestinga erlendra fjárfesta í ríkisskuldabréfum hófst á ný í apríl á síðasta ári eftir að það stöðvaðist alfarið þegar Seðlabanki Íslands virkjaði sérstakt fjárstreymistæki í júní árið 2016. Var þá kveðið á um að 40 prósent af innflæði fjármagns vegna fjárfestinga í skuldabréfum þyrfti að binda í eitt ár á núll prósent vöxtum. Er markmið reglnanna að tempra og hafa áhrif á samsetningu fjármagnsflæðis til landsins og stuðla að fjármálastöðugleika. Heildarinnflæði frá erlendum fjárfestum í ríkisskuldabréf nam samanlagt 18,3 milljörðum króna á öllu síðasta ári. Innflæðið í skráð hlutabréf var hins vegar 48,2 milljarðar króna á sama tíma og jókst umtalsvert á milli ára.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fleiri fréttir Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Sjá meira