Laun hækkað talsvert umfram tekjur Kristinn Ingi Jónsson skrifar 19. júlí 2018 06:00 Icelandair Group hefur þurft að glíma við miklar hækkanir á olíuverði og launakostnaði á undanförnum misserum. Stjórnendur flugfélagsins lækkuðu nýverið afkomuspá þess fyrir árið um þriðjung VÍSIR/VILHELM
Hlutfall launakostnaðar af tekjum Icelandair Group er talsvert hærra en sama hlutfall helstu keppinauta flugfélagsins í Evrópu samkvæmt samantekt Fréttablaðsins. Umræddur kostnaður nam um 31,4 prósentum af tekjum íslenska flugfélagsins í fyrra en til samanburðar var hlutfallið 21,6 prósent hjá norræna flugfélaginu SAS og 20,9 prósent hjá breska flugfélaginu British Airways á síðasta rekstrarári félaganna. „Stjórnendur félagsins þurfa að leita allra leiða til þess að lækka kostnað þess í íslenskum krónum,“ segir Snorri Jakobsson, sérfræðingur hjá Capacent.Snorri Jakobsson, greinandi hjá Capacent.Launakostnaður Icelandair Group, sem er stærsti kostnaðarliður félagsins, nam ríflega 445 milljónum dala, sem jafngildir um 47 milljörðum króna, á síðasta ári og hækkaði um 26 prósent á milli ára. Hlutfall kostnaðarins af tekjum var 31,4 prósent en hlutfallið hefur hækkað hratt á undanförnum tveimur árum. Það var 24,6 prósent árið 2015 og 27,4 prósent árið 2016. Snorri bendir á að launakostnaður félagsins hafi hækkað langt umfram tekjur á hverju ári undanfarin fimm ár. Samt sem áður hafi tekjur vaxið mikið. Ekkert fyrirtæki ráði við slíkar kostnaðarhækkanir til lengdar. Það sé einfaldlega ekki sjálfbært. „Steininn tók úr á árunum 2016 og 2017 þegar launakostnaður hækkaði um tugi prósenta umfram tekjuaukningu,“ segir hann. Á sama tíma hafi launakostnaður sem hlutfall af tekjum farið úr 24,6 prósentum í 31,4 prósent. Að hótelrekstri samstæðunnar – Icelandair Hotels – undanskildum var launakostnaður 30,2 prósent af tekjum Icelandair Group á síðasta ári. Hlutfallið var hvergi hærra á meðal stærstu flugfélaga í Evrópu og keppinauta íslenska félagsins. Næsthæst var það hjá franska flugfélaginu Air France KLM eða 29,6 prósent en lægst var það hjá ungverska lággjaldaflugfélaginu Wizz Air eða aðeins 7,6 prósent. Fyrrnefnda félagið hefur gripið til ýmissa aðhaldsaðgerða til þess að ná launakostnaðinum niður, við litlar vinsældir franskra verkalýðshreyfinga, en verkfallsaðgerðir af hálfu starfsmanna félagsins hafa kostað það yfir 400 milljónir evra, jafnvirði um 50 milljarða króna, það sem af er árinu. WOW air hefur ekki birt ársreikning fyrir síðasta ár en árið 2016 var launakostnaður ríflega 14,8 prósent af tekjum félagsins. Þó ber að taka fram að samanburðurinn á milli flugfélaga er ýmsum vandkvæðum bundinn, enda er ekki fyllilega sambærilegt á milli félaga hvaða greiðslur teljast til launakostnaðar. Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri Icelandair, sagði til dæmis í viðtali við ViðskiptaMoggann fyrr í mánuðinum að á meðan um 1.500 starfsmenn störfuðu á launaskrá Icelandair við hina ýmsu þjónustu á Keflavíkurflugvelli væri sama þjónusta aðkeypt hjá mörgum flugfélögum, til dæmis WOW air.Fíllinn í herberginu Snorri segir Icelandair Group hafa notið góðs af ytri aðstæðum á árunum 2011 til 2015. Raungengi hafi verið sögulega lágt og launakostnaður því lægri og samkeppni á flugmarkaði minni. Samkeppnisstaðan hafi hins vegar versnað hratt þegar gengi krónunnar hafi tekið að styrkjast. „Stjórnendur félagsins þurfa að leita allra leiða til þess að lækka kostnað þess í íslenskum krónum, hvort sem þeir gera það með því að útvista hluta starfseminnar eða með öðrum sparnaðaraðgerðum,“ segir Snorri. „Samkeppnin er hörð og flugfélög keppa í verðum. Of mikill kostnaður leiðir til þess að félagið verður undir í verðsamkeppninni.“ Ekki sé hægt að treysta á að samkeppnin minnki. Stjórnendurnir verði að ná tökum á launakostnaðinum. Greinendur hafa lýst yfir áhyggjum af hækkandi launakostnaði íslenska flugrisans og sagt kostnaðinn vera „fílinn í herberginu“. Þannig var 31 prósents hækkun kostnaðarins á fyrsta fjórðungi ársins langt umfram væntingar sérfræðinga. Sagði hagfræðideild Landsbankans þróunina áhyggjuefni. „Launakostnaður í flugi er reyndar alþjóðlegt áhyggjuefni en Icelandair má síst við miklum hækkunum,“ sagði í viðbrögðum sérfræðinga Landsbankans við uppgjöri félagsins. Bentu þeir jafnframt á að útlit væri fyrir að launakostnaðurinn hækkaði um ríflega 100 milljónir dala á milli ára. Í afkomutilkynningu Icelandair Group var tekið fram að helmingur hækkunarinnar á launakostnaði skýrðist af styrkingu krónunnar gagnvart Bandaríkjadal, en nær allur launakostnaður samstæðunnar er í krónum. Þá hafi stöðugildum samstæðunnar fjölgað á tímabilinu og laun samkvæmt samningum hækkað. Fjölgun stöðugilda megi rekja til annars vegar fjölgunar áhafna vegna vaxtar félagsins og hins vegar til þess að ákveðið hafi verið að „vinna ákveðnu vinnu með eigin starfsmönnum í stað þess að kaupa þjónustuna af þriðja aðila“.Gengur ekki til lengdar Eins og kom fram í vorhefti Peningamála Seðlabanka Íslands hefur launakostnaður íslenskra fyrirtækja hækkað mun meira en meðaltalið í öðrum ríkjum OECD á síðustu árum. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, bendir á að launakostnaður íslenskra fyrirtækja, mældur erlendri mynt, hafi hækkað um meira en helming á umliðnum árum enda hafi krónan styrkst samhliða miklum launahækkunum. „Það sjá allir menn í hendi sér að það getur ekki gengið til lengdar og mun að sjálfsögðu koma niður á samkeppnishæfni þessara fyrirtækja sem eru í erlendri samkeppni og er nú þegar byrjað að gera það,“ segir Halldór Benjamín.
Birtist í Fréttablaðinu Ferðamennska á Íslandi Fréttir af flugi Icelandair Tengdar fréttir Hærra olíuverð bitnar á ferðaþjónustu Verð á þotueldsneyti hefur hækkað um 50 prósent á einu ári. Hærra olíuverð gæti þýtt hærra flugmiðaverð sem gæti dregið úr fjölda ferðamanna. Greinandi segir að hækkanir á eldsneytisverði hafi gert það enn mikilvægara fyrir rekstur flugfélaga að fargjöld hækki. 6. júní 2018 08:00 Segja launakostnað Icelandair Group vera fílinn í stofunni Ef flugfélagið Icelandair lækkar ekki launakostnað gæti félagið orðið undir í verðsamkeppni við önnur flugfélög, að mati greinenda Capacent. 28. febrúar 2018 06:00 Hærri launakostnaður Icelandair áhyggjuefni Launakostnaður Icelandair Group nam 113 milljónum dala, sem jafngildir um 11,4 milljörðum króna, á fyrsta fjórðungi ársins og hækkaði um 31 prósent á milli ára. 2. maí 2018 06:00 Samrunahrina í ferðaþjónustu eftir að hafa spennt bogann of hátt Æ fleiri fyrirtæki í ferðaþjónustu leita nú allra leiða til þess að hagræða í rekstri og sameinast öðrum fyrirtækjum. Breytt rekstrarumhverfi ógnar afkomu margra ferðaþjónustufyrirtækja. Einyrkjastarfsemi í atvinnugreininni er ekki lengur sjálfbær. 20. september 2017 07:30 Mest lesið Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Viðskipti innlent Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Viðskipti innlent „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Viðskipti innlent Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Viðskipti innlent Hringrásin: „Ég er með blæti fyrir gömlu timbri“ Atvinnulíf Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma Viðskipti innlent Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Viðskipti innlent Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Bein útsending: Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Vextir lækka hjá Íslandsbanka Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“ Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Heimar mega kaupa Grósku Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum 4,5 milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Sjá meira
Hærra olíuverð bitnar á ferðaþjónustu Verð á þotueldsneyti hefur hækkað um 50 prósent á einu ári. Hærra olíuverð gæti þýtt hærra flugmiðaverð sem gæti dregið úr fjölda ferðamanna. Greinandi segir að hækkanir á eldsneytisverði hafi gert það enn mikilvægara fyrir rekstur flugfélaga að fargjöld hækki. 6. júní 2018 08:00
Segja launakostnað Icelandair Group vera fílinn í stofunni Ef flugfélagið Icelandair lækkar ekki launakostnað gæti félagið orðið undir í verðsamkeppni við önnur flugfélög, að mati greinenda Capacent. 28. febrúar 2018 06:00
Hærri launakostnaður Icelandair áhyggjuefni Launakostnaður Icelandair Group nam 113 milljónum dala, sem jafngildir um 11,4 milljörðum króna, á fyrsta fjórðungi ársins og hækkaði um 31 prósent á milli ára. 2. maí 2018 06:00
Samrunahrina í ferðaþjónustu eftir að hafa spennt bogann of hátt Æ fleiri fyrirtæki í ferðaþjónustu leita nú allra leiða til þess að hagræða í rekstri og sameinast öðrum fyrirtækjum. Breytt rekstrarumhverfi ógnar afkomu margra ferðaþjónustufyrirtækja. Einyrkjastarfsemi í atvinnugreininni er ekki lengur sjálfbær. 20. september 2017 07:30