Þegar Liverpool mætti Crystal Palace síðast á mánudagskvöldi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. ágúst 2018 12:00 Steven Gerrard reynir að hughreysta Luis Suarez í leikslok. Vísir/Getty
Lokaleikur annarrar umferðar ensku úrvalsdeildarinnar er í kvöld þegar Crystal Palace tekur á móti Liverpool á Selhurst Park í London. Eitt súrasta kvöldið í sögu Liverpool var þegar liðið mætti Palace síðast á mánudegi. Mikil eftirvænting er hjá öllum í Liverpool eftir frábæran sigur í fyrstu umferð, vel heppnað undirbúningstímabil og heimsklassa frammistöðu á leikmannamarkaðnum í sumar. Liverpool var á toppnum eftir fyrstu umferð þar sem liðið vann 4-0 heimasigur á West Ham. Liðið þarf hinsvegar stórsigur í kvöld ætli það að ná toppsætinu af City sem er með 6 stig og markatöluna 8-1 eftir tvo leiki. Mánudagskvöld á Selhurst Park ætti hins vegar að rifja upp ansi súrar minningar fyrir stuðningsmenn Liverpool og þann eina leikmenn sem var með liðinu fyrir rúmum fjórum árum.The last time Liverpool played Crystal Palace on a Monday night, this happened... 78': 0-3 90': 3-3 Where are they now? Crystanbul special - https://t.co/qYq2cIJVdMpic.twitter.com/EMgelPpszj — Squawka Football (@Squawka) August 18, 2018Liverpool missti af enska meistaratitlinum á lokasprettinum voruð 2014 en tap á heimavelli á móti Chelsea og jafntefli á útivelli á móti Crystal Palace kostuðu Liverpool titilinn sem endaði hjá Manchester City. Leikurinn á móti Crystal Palace var aftur á móti sérstaklega súr af því að Liverpool-liðið var komið í 3-0 þegar klukkutími var liðinn.Crystanbul, Gerrard's farewell & cursing Klopp... ...Will #CRYLIV prove an apt hashtag once again as Palace host Liverpool? pic.twitter.com/Jc4p5Cm7Qv — BBC Sport (@BBCSport) August 20, 2018Palace-menn skoruðu hinsvegar þrjú mörk á síðustu ellefu mínútum leiksins og tryggðu sér stig. Þessi tvö stig sem Liverpool tapaði voru einmitt stigin tvö sem skildu af tvö efstu liðin. Manchester City var reyndar með mun betri markatölu en Liverpool og því hefði þurft meira til. Það hefði aftur á móti verið mun meiri pressa á City-liðinu að klára sinn leik í lokaumferðinni sex dögum síðar. Damien Delaney skoraði fyrsta markið, hans eina mark á tímabilunum 2013-14 og 2014-15, áður en varamaðurinn Dwight Gayle skoraði tvisvar með sjö mínútna millibili.The worst 11 minutes Liverpool FC have ever experienced in the Premier League. #LFC#CRYLIVpic.twitter.com/G73ZhfLoQS — Twelfth Man - LFC (@LFC_OTSN) August 20, 2018Það er bara einn leikmaður eftir hjá Liverpool sem tók þátt í þessum leik en það er Daniel Sturridge sem spilaði fyrstu 86 mínútur leiksins. Allir aðrir hafa annaðhvort verið seldir, komast ekki í liðið eða eru búnir að leggja knattspynuskóna sína á hilluna. Joe Allen, sjálfsmark frá Damien Delaney og mark frá Luis Suarez höfðu komið Liverpool í 3-0 í leiknum. Luis Suarez grét í leikslok eins og frægt var. Hann átti aðeins eftir að spila einn leik til viðbótar fyrir Liverpool og var farinn til Barcelona nokkrum mánuðum síðar.Tomorrow's game #CRYLIV Let's hope so........ pic.twitter.com/0gruhYSs2M — Andy Lucey (@andy_lucey) August 19, 2018 Hér fyrir neðan má sjá myndband frá Crystal Palace um þennan ótrúlega leik í maímánuði 2014. Við vörum viðkvæma stuðningsmenn Liverpool við þessum myndum.
Enski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira