Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir eiga ekki möguleika á að komast áfram í undanúrslit á EM í golfi þrátt fyrir jafntefli við Noora Komulainen og Ursula Wikstrom frá Finnlandi.
Leikurinn í dag var mjög jafn eins og gefur að skilja miðað við úrslitin.
Þegar tvær holur voru eftir voru Ólafía og Valdís tveimur holum undir. Þær unnu 17. holuna og þá 18. og náðu jafntefli.
Ólafía og Valdís töpuðu fyrsta leik sínum við lið frá Bretlandi í gær. Bretarnir unnu austurrískt lið í dag og eru því með fjögur stig í efsta sæti riðilsins. Sama hvað Ólafía og Valdís gera gegn Austurríkiskonunum á morgun geta þær því aldrei farið yfir þær bresku og möguleikinn á undanúrslitum úr sögunni.
Ólafía og Valdís gerðu jafntefli
Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar

Mest lesið

Bastarður ráðinn til starfa
Fótbolti

Gary Martin aftur í ensku deildina
Fótbolti


Furðu erfitt að mæta systur sinni
Fótbolti

„Ég hefði getað sett þrjú“
Íslenski boltinn

Leik lokið: Víkingur - ÍA 2-1 | Víkingar tylltu sér á toppinn
Íslenski boltinn



