Handbolti

Svíarnir slegnir í rot í Split

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur Guðmundsson skoraði sjö mörk þegar Ísland vann afar mikilvægan sigur á Svíþjóð, 26-24, í fyrsta leik sínum á EM í Króatíu.
Ólafur Guðmundsson skoraði sjö mörk þegar Ísland vann afar mikilvægan sigur á Svíþjóð, 26-24, í fyrsta leik sínum á EM í Króatíu. vísir/ernir
Handbolti Þeir sem hafa fylgst með íslenska landsliðinu í gegnum árin bjuggust væntanlega seint við því að sjá það 10 mörkum yfir gegn Svíþjóð á stórmóti. Sú var samt raunin í leik liðanna í A-riðli Evrópumótsins í Króatíu í gær. Íslenska liðið spilaði stórkostlega fyrstu 40 mínútur leiksins og yljaði manni um hjartaræturnar.

Ísland gaf tóninn með því að skora fyrstu fjögur mörk leiksins. Eftir 14 mínútur var staðan 11-4, Íslendingum í vil, og Kristján Andrésson, þjálfari Svía, sá sig knúinn til að taka sitt annað leikhlé. Sænska liðið, sem spilaði svo vel á HM í fyrra, var í miklum vandræðum á báðum endum vallarins. Íslenska vörnin var gríðarlega öflug og ef Svíarnir komust í gegnum hana beið þeirra Björgvin Páll Gústavsson. Bakarinn úr Kópavogi varði 11 skot í fyrri hálfleik, eða 60% þeirra skota sem hann fékk á sig. Lygileg frammistaða.

Aron Pálmarsson stýrði sóknarleiknum af mikilli festu og Ólafur Guðmundsson valdi rétta tímapunktinn til að eiga sinn besta leik á stórmóti. Hann skoraði fjögur af fyrstu níu mörkum Íslands og endaði með sjö mörk, flest í íslenska liðinu. Hægra megin var Rúnar Kárason heitur og skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik og fimm alls.

Ísland skoraði aðeins eitt mark á síðustu 10 mínútum fyrri hálfleiks en til allrar hamingju gáfu vörnin og Björgvin Páll ekkert eftir. Staðan í hálfleik var 15-8, Íslandi í vil.

Svíar skoruðu fyrstu tvö mörkin í seinni hálfleik en Íslendingar svöruðu með 4-1 kafla og komust 10 mörkum yfir, 21-11.

Í stöðunni 22-12 fór að halla undan fæti og sænska liðið gekk á lagið. Íslenska liðið fór afar illa að ráði sínu manni fleiri og fékk m.a. á sig þrjú mörk í röð í yfirtölu. Svíar skoruðu átta mörk gegn einu og minnkuðu muninn í þrjú mörk. En Janus Daði Smárason átti afar mikilvæga innkomu, skoraði og fiskaði víti sem gaf mark. Strákarnir gerðu nóg til að landa sigrinum sem var tæpari en hann hefði átt að vera. En frammistaðan lengst af var frábær og gefur okkar mönnum byr í seglin fyrir leikinn gegn Króatíu á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×